Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
mánudagur, 2. maí 2016

Hermann Friðriksson bronsstigameistari BH!

Hermann Friðriksson var bronsstigameistari BH veturinn 2015-2016.  Hann halut 312 bronsstig.  Í 2. sæti var Guðbrandur Sigurbergsson með 298 bronsstig og í 3. sæti var Hrund Einarsdóttir með 250 bronsstig.

sunnudagur, 1. maí 2016

92 konur tóku þátt í árshátið kvenna 2016

María Haralds Bender og Stefanía Sigurbjörnsdóttir eru sigurvegarar á árshátíð kvenna 2016.  Þær enduðu með 61,8% skor eftir 36 spil.  Í öðru sæti voru Anna Ívarsdóttir og Guðrún Óskarsdóttir.

fimmtudagur, 28. apríl 2016

Gulli Karls og Ásmundur efstir í Kópavogi NÝ BRONSSTIGASTAÐA

Í kvöld fór fram annað kvöldið af þremur í Vortvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Júlíus Snorrason og Eiður Júlíusson náðu besta skorinu en Gunnlaugur Karlsson og Ásmundur Örnólfsson eru hins vegar með eins stigs forystu samanlagt.

mánudagur, 25. apríl 2016

HB Granda mótið á Vopnafirði

HB Granda tvímenningsmótið á Vopnafirði. Verður haldið 30. apríl 2016 í Miklagarði á Vopnafirði. Það hefst kl. 11.00 og er þáttkökugjald 4.000 á par og er kaffi og meðlæti innifalið í keppnisgjaldi.

laugardagur, 23. apríl 2016

Heiðar og Logi unnu Davíðsmótið í Dölum vestur

Hið árlega Davíðsmót, til minningar um Davíð Stefánsson á Saurhóli í Saurbæ var haldið í dag. Borgfirðingarnir Heiðar Baldursson og Logi Sigurðsson gerðu góða ferð í Dalina, fyrst með því að húkka sér far með keppnisstjóranum og síðan með því að koma klifjaðir verðlaunum til baka eftir harða baráttu við bikarhafana frá í fyrra, bræðurna Odd og Árna Hannessyni.

fimmtudagur, 21. apríl 2016

Gulli Karls og Ásmundur efstir í Kópavogi

Fyrsta kvöldið af þremur í vortvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Öll úrslit hér.

fimmtudagur, 21. apríl 2016

Rangæingar -- Vertíðarlok

Að vanda héldum við Rangæingar okkar lokakvöld síðasta vetrardag að Heimalandi.   Förum þá yfir veturinn, afhendum snarlega þeim verðlaun sem þau verðskulda og setjumst svo við spil, enda leiðist okkur fremur fundaseta en gleðjumst mjög við spil.

miðvikudagur, 20. apríl 2016

Síðasta keppni vetrarins í Kópavogi hefst í kvöld

Síðasta keppni vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs er þriggja kvölda vortvímenningur þar sem tvö bestu kvöldin telja til verðlauna. Matchpoint og frjáls mæting.

mánudagur, 18. apríl 2016

Síðasta spilakvöld vetrarins.

Í kvöld verður síðasta spilakvöld vetrarins hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Við viljum þakka spilurum fyrir þáttökuna í vetur. Aðalfundur félagsins verður auglýstur síðar.

laugardagur, 16. apríl 2016

Hjónin Þuríður Ingólfsdóttir og Pálmi Kristmannsson unnu Halamótið 2016

Hjónin frá Egilstöðum, Þuríður Ingólfsdóttir og Pálmi Kristmannsson unnu Halamótið 2016 með aðeins 0,1% mun.  Öll úrslit hér.

miðvikudagur, 30. mars 2016

Rangæingar -- Djúpir miðjumenn

Sl. þriðjudag lékum við Rangæingar 3ju umferð af 5 í Samverkstvímenningnum.  Til leiks að Heimalandi mættu 14 pör og léku 28 spil.   Lengi kvölds sátu strákurinn og stelpan í efsta sæti en svo gerðu fleiri tilkall til toppsætins, komu þangað og fóru svo jafnharðan þaðan aftur.

miðvikudagur, 30. mars 2016

Drottningin 80 ára

 Bridgemót Erlu Sigurjónsdóttur 1.apríl sjá nánar hér  Skráning  - Búið er að loka fyrir skráningu Erla Sigurjónsdóttir     -    Guðni Ingvarsson Anna Ívarsdóttir          -   Guðrún Óskarsdóttir Bernódus Kristinsson   -   Ingvaldur Gústafsson Anna G.

laugardagur, 26. mars 2016

Rangæingar -- Laufásinn og páskaeggið

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman til að leika okkar árlega páskaeggjabarómeter.  Til leiks mættu 13 pör og leikinn var Monrad - barometer, 28 spil.

þriðjudagur, 22. mars 2016

4 kvölda kauphallartvímenningur að byrja í kvöld, 22. mars

Fjögurra kvölda Kauphallartvímenningur að byrja hjá BR í kvöld!  Fyrirkomulagið er imps across the field, sem sagt impar yfir engið! Allir að mæta í þetta skemmtilega mót!

sunnudagur, 20. mars 2016

Magnús og Halldór unnu Pálmasunnudags-Monrad Breiðfirðinga

Pálmasunnudags-Monrad Bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins var spilaður í kvöld. Öll úrslit hér.

laugardagur, 19. mars 2016

Rangæingar -- Skipstjóravals

Sl. þirðjudag settumst við Rangæingar að spilum á Heimalandi og lékum 2. umferð í Samverkstvímenningnum.   Eins og menn muna voru veitt vegleg bjórverðlaun í 1. umferðinni, viku fyrr.

föstudagur, 18. mars 2016

Briddsfélag Selfoss

Haldið var áfram með íslandsbankatvímenninginn, þegar lokið er 2 kvöldum af 3 eru Björn og Helgi Grétar efstir. Fast á hæla þeirra eru þeir Össur og Karl.

fimmtudagur, 17. mars 2016

Sverrir Sterki manna sterkastur í Kópavogi.

Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld með sigri sveitar Sverris Sterka sem komst uppfyrir Binga og feðgana á lokakvöldinu. Öll úrslit og spilagjafir.

föstudagur, 26. febrúar 2016

Briddsfélag Selfoss

Gunnar Björn heldur góðri forystu þegar þremur kvöldum af fjórum er lokið í aðalsveitakeppninni. Mótinu lýkur næstkomandi fimmtudag og verður hart sótt að þeim.

fimmtudagur, 25. febrúar 2016

Hulduherinn efstur eftir fyrsta kvöld í hraðsveitakeppni BK

Fyrsta kvöldið af fjórum í hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld.