Fréttir 2016
Rangæingar -- Sé ég með hattinn
Enn æsast leikar í sveitakeppni félagsins og muna menn vart aðra eins spennu. Einstaka kona telur sig þó muna eftir ámóta spennu í sínu ungdæmi og þá helst á hernámsárunum þegar borðalagðir dátar spígsporuðu um íslenska grund, einhverjum sprundum landsins til gleði en sauðskinnskóuðum ýtum flestum til ama.
Hraðsveitakeppni að hefjast í Kópavogi. Skráningarlisti kominn
Næsta fimmtudag, 25 feb. hefst fjögurra kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Kópavogs. Skráning er hjá Jörundi s. 699-1176 og thorduring@gmail.com Skráninarlisti Þeim sem vantar væng er bent á að hafa samband svo við getum aðstoðað við að mynda sveitir.
Valsmótið
BRIDDSMÓT VALS 2016 Briddsmót VALS verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands Síðumúla 37, 3. Hæð fimmtudaginn 3.3.2016 klukkan 19.30 Þátttakendur sem vilja skrá sig rafrænt sendi tölvupóst á póstfangið: sigtryggurj@simnet.
Vélasalan er Reykjanesmeistari 2016
Reykjanesmótið í sveitakeppni 2016 var spilað nú um helgina. Átta sveitir tóku þátt, þar af ein gestasveit, þannig að sjö sveitir kepptu um sex sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins 2016. Sveit Sverris Þórissonar sigraði í svæðakeppninni en sveit Vélasölunnar sem varð í öðru dæti er hinsvegar Reykjanesmeistari þar sem efsta sveitin var skipuð spilurum utan Reykjaness.
Briddsfélag Selfoss
Aðalsveita keppnin hélt áfram síðast liðið fimmtudagskvöld. Engin breyting var á toppsætinu þó að Brynjólfur og félagar hafi sótt fast að Gunnari Birni.
Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson Kópavogsmeistarar
Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld. Spilaður var þriggja kvölda barómeter og eftir harða baráttu stóðu Gísli Tryggvason og leifur Kristjánsson uppi sem sigurvegarar.
Blakey og Blakey frá Manchester efst í Miðvikudagsklúbbnúm
Hjón frá Manchester í Englandi komu sáu og sigruðu í Miðvikudagsklúbbnum í gærkvöldi. Öll úrslit hér.
Bridgefélag Selfoss (10)
Kristján og Guðmundur halda efstasætinu í janúarbutler félagsins, þó að sótt sé að þeim úr öllum áttum. Lokið er tveimur spilakvöldum af þremur. Ekki verður spilað næstkomandi fimmtudag vegna briddshátíðar.
Landsliðskeppni kvenna: Heildarstaða komin í lag.
Undanfarna daga hef ég leiðrétt nokkur spil sem báðir aðilar voru sammála um að hefðu verið rangt skráð í borðtölvurnar. Tók til baka breytingar sem ég hafði gert en láðist að fá samþykki beggja.
Hjálmar og Friðjón unnu Janúar-Monrad BK
Þriggja kvölda Janúar-Monrad tvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld með sigri Friðjóns Þórhallssonar og Hjálmars Pálssonar. Öll úrslit hér.
Suðurnesjasvefla farin af stað
Við á Suðurnesjum erum byrjuð aftur eftir jólafrí og eru tvö kvöld búin og hefur verið spilaður butler tvímenningur. Hér má sjá úrslit Svo eftir bridgehátíð förum við af stað með aðaltvímenning og svo í kjölfarið sveitakeppni.
Rangæingar -- Æskan
Sl. þriðjudag hófst sveitakeppnin hjá okkur Rangæingum. Til leiks mættu 8 sveitir. Um nokkurra ára skeið hefur spilastjóri tekið sér alræðisvald og skipað mönnum í sveitir með það að markmiði að gera sveitakeppnina sem jafnasta.
Patton sveitakeppni BR og Hereford- staðan eftir 3 kvöld af 4
JE Skjanni heldur forystunni þegar eitt kvöld er eftir í Patton sveitakeppni BR en staða efstu sveita er þannig: Athugið að síðasta kvöldið í þessu móti verður spilað þriðjudaginn eftir Bridgehátíð en ekki verður spilað í BR í næstu viku.
Reykjanesmótið ísveitakeppni 20-21 febrúar.
Reykjanesmótið í sveitakeppni fer fram helgina 20-21 febrúar að Flatahrauni 3 í Hafnarfirði. Nánar síðar.