Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 14. maí 2026

Rúnar Einarsson er bronsstigameistari BR

Rúnar Einarsson er bronsstigameistari Bridgefélags Reykjavíkur veturinn 2025-2026. Hægt að skoða öll bronsstig vetrarins hér.

þriðjudagur, 12. maí 2026

Halldór Þorvaldsson safnaði flestum bronsstigum í BOS í vetur

Halldór Þorvaldsson náði sér í flest bronsstig hjá Bridgefélagi Oddfellow og Súgfirðinga veturinn 2025-2026 eins og sjá má hér: 2025-2026

sunnudagur, 10. maí 2026

Kjördæmamótið á Gamla mátann

Hér er slóð áKjördæmamótið á Gamla mátann svo kallaða og þar er hægt að sjá heildarstöðu kjördæmanna.

föstudagur, 20. mars 2026

Undanúrslitin Tímatafla

Fólk er byrjað að spyrja út í Undanúrslitin sem verða spiluð helgina 27-29 mars. Formið á þeim er það sama ár eftir ár, spilaðar 12 umferðir með 12 spila leikjum og tímaplanið það sama og áður.

mánudagur, 16. mars 2026

Gullstig á Íslandsmóti kvenna.

Hér kemur gullstigablað eftir Íslandsmót kvenna í sveitakeppni. Tvö gullstig eru til skiptanna í hverjum leik en ég setti ekki inn uppbótarstigin. Læt Matta um það.

fimmtudagur, 12. mars 2026

140 spilarar hafa unnið sér inn bronsstig í BR í vetur.

Nú liggur fyrir að Rúnar Einarsson og Guðjón Sigurjónsson hafa unnið sér inn flest bronsstig hjá BR í vetur. Alls hafa 140 spilarar fengið bronsstig í vetur en athygli vekur að þar af hafa aðeins 64 fengið stig bæði fyrir og eftir áramót en 76 einungis annað hvort fyrir eða eftir áramót.

föstudagur, 13. febrúar 2026

Bronsstig BR 2026 komin á heimasíðuna

Bronsstigin fyrir Nýárssveitakeppni BR eru komin á heimasíðuna. Þar eru þrír Kjöríssmenn fremstir meðal jafningja.

föstudagur, 16. janúar 2026

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni Tímaplan.

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni er spilað á morgun frá kl. 10:00 - 18:40. Þrettán sveitir skráðar á þessari stundu og einhver von um þá fjórtándu. Spilaðar verða 7 umferðir monrad með 9 spila leikjum.

miðvikudagur, 31. desember 2025

Silfurstigin fyrir Jólamót BR komin á netið.

Jólamót BR var spilað þann 30. desember eins og venjan er. Hér eru silfurstigin.jólamór-br-2025-silfur.

sunnudagur, 21. desember 2025

Betur má ef duga skal. Samantekt yfir mætingu á spilakvöld.

Ég var að klára að senda skilagreinar til BSÍ yfir mætingar nokkurra bridgefélaga á Höfuðborgarsvæðinu fram að jólum. Ákvað að taka saman litla töflu í excel og sýna ykkur.

föstudagur, 19. desember 2025

Jólamót BS/Muninn á morgun kl. 12:00 Dagskrá

Jólamót BS/Muninn er á morgun laugardag kl. 12:00. Enn er pláss fyrir slatta af pörum. Drífið í að skrá ef eruð ekki búin að því. Senda sms 862-1791 eða á messenger/Þórður Ingólfsson ef þið forfallist.

fimmtudagur, 18. desember 2025

Brynjar Níelsson og Guðmundur Ágústsson bronsstigahæstir hjá BOS

Guðmundur Ágústsson og Brynjar Níelssonvhafa safnað flestum bronsstigum hjá Bridgefélagi Oddfellow og Súgfirðinga.bronsstig-2025-haust.

miðvikudagur, 10. desember 2025

Rúnar Einarsson bronsstigahæstur í BR

Rúnar Einarsson hefur unnið sér inn flest bronsstig hjá BR í haust.bronsstig-2025-haust.

sunnudagur, 7. desember 2025

Gullstigablað allra sveita í Íslandsmóti í parasveitakeppni.

Hér er gullstigablað fyrir allar sveitir á Íslandsmótinu í parasveitakeppni. ATH. Skjalið sýnir bara sigur/jafntefli/tap s.s. 1 - 0,5 - 0 en ekki gullstigin sjálf.

laugardagur, 6. desember 2025

Búið að raða í allar umferðir

Búið að raða í allar umferðir í Íslandsmóti para í sveitakeppni.

föstudagur, 5. desember 2025

Íslandsmótið í parasveitakeppni. Tímatafla

Fjórtán sveitir eru skráðar í Íslandsmótið í parasveitakeppni og þá verða spilaðir 8 spila leikir og allir við alla. Tímataflan er klár.íslandsmót-parasveitakeppni.

laugardagur, 22. nóvember 2025

Deildakeppnin á Gamla mátann + Gullstigablað

Hér er hægt að skoða bæði 1. deild og 2. deild á gamla mátann. Heimasíða BSÍ ræður t.d. ekki við að sýna sveitakeppnisleiki með fleiri en einni lotu eins og er spilað í úrslitum fyrstu deildar.

mánudagur, 3. nóvember 2025

Bronsstig BR eftir fyrstu keppni vetrarins

Aðalsteinn Jörgensen hefur safnað flestum bronsstigum hjá BR í haust.brinsstig-2025-haust.

laugardagur, 25. október 2025

Ómar Olgeirsson er Íslandsmeistari í einmenningi 2025

Íslandsmótið í einmenningi 2025 var spilað í dag. Keppnisstjóri lenti í mega-vandræðum með að láta heildarstöðuna koma út á netið en hér keumur lokastaðan reiknuð í excel.

laugardagur, 25. október 2025

Heildarstaða efstu spilaranna þegar tvær umferðir eru eftir

einmenningur-heild.