Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
mánudagur, 10. apríl 2017

Hulda og Guðmundur unnu Páskatvímenningr Breiðfirðinga

Páskattvímenningur Briddsdeildar Breiðfirðingafélagsins var spilaður í gærkvöldi. Hulda Hjálmarsdóttir og Guðmundur Sigursteinsson unnu nokkuð öruggan sigur með 66,2% skori.

sunnudagur, 9. apríl 2017

Briddsfélag Selfoss

Sigurður og Guðmundur unnu þriggjakvölda tvímenning sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Þetta var síðasta mót vetrarins og munu briddsspilarar á Selfossi nú fara að sinna vorverkum.

fimmtudagur, 30. mars 2017

Benni og Ingi efstir í Impakeppni Bakarameistarans

Fyrsta kvöldið af þremur í Impakeppni Bakarameistarans var spilað í kvöld og tóku Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson afgerandi forystu.

miðvikudagur, 29. mars 2017

Rangæingar -- Listerinn gamli hrökk loks í gang

Sl. þriðjudag lukum við Rangæingar leik í Samverkstvímenningnum og höfðum þá ríslað okkur við það í ein fimm kvöld.  14 pör mættu til leiks.   Heldur höfðu gömlu dísilvélarnar hökt undanfarið, einhverjar gangtruflanir gert vart við sig en nú hrökk gamli Listerinn í gang og gekk þýðlega þetta kvöldið, því góðtemplararnir Sigurður og Torfi unnu kvöldið nokkuð örugglega með 64,1% skor og þar með Samverkstvímenninginn, þar sem Bjorn stórtemplar frá Húsavík náði sér ekki á strik þetta kvöldið, enda Eyþórslaus og lauk leik á innan við 50% skori.

miðvikudagur, 29. mars 2017

Árshátíð kvenna 6.maí 2017

Árshátíð Bridgekvenna verður Laugardaginn 6. Maí 2017 á Fosshótel Þórunnartúni 1                                                    Mæting kl.

föstudagur, 24. mars 2017

Briddsfélag Selfoss

Öðru kvöldi af þremur er lokið í tvímenningskeppni. Guðmundur og Sigurður hafa tekið nokkra forystu en það er kallt á toppnum og munu þeir ekki vera teknir neinum vetlingatökum á lokakvöldi mótsins.

föstudagur, 24. mars 2017

Rangæingar -- Nýir vendir

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman á Heimalandi og lékum fjórðu og næst síðustu umferðina í Samverkstvímenningnum.  Úrslitin urðu ekki eftir bókinni, ef sú bók er á annað borð til.

fimmtudagur, 23. mars 2017

Sverrir Þóris og félagar unnu Hraðsveitakeppni BK

Í kvöld lauk fjöggura kvölda Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs með öruggum sigri sveitar Sverris Þórissonar sem fékk 191 stigi meira en Jón Steinar og hans meðreiðarsveinar.

mánudagur, 20. mars 2017

Ókeypis Bridgenámskeið fyrir 25 ára og yngri

Bridgeskólinn býður öllum 25 ára og yngri að koma á ókeypis námskeið og læra að spila bridge. Byrjað er frá grunni, ekki þarf að vera með neina þekkingu á spilinu áður en mætt er á námskeiðið.

mánudagur, 20. mars 2017

4 kvölda kauphallartvímenningur BR hefst 21. mars

Kauphallartvímenningur BR hefst næsta þriðjudag. Fjögurra kvölda mót (imps across the field). Vegleg verðlaun þar sem sigurvegarar fá gistingu og keppnisgjald í tvímenning og sveitakeppni á Siglufjarðarmótinu 6.-8. október.

sunnudagur, 26. febrúar 2017

Briddsféag Selfoss

Aðalsveitakeppnin hélt áfram á fimmtudagskvöldið. Kristján og Félagagar virðast vera óstöðvandi. En spyrjum að leislokum. Butler er klár frá síðustu tveimur kvöldum.

fimmtudagur, 23. febrúar 2017

Gulli Karls og Ásmundur eru Kópavogsmeistarar 2017

Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld með sigri Gunnlaugs Karlssonar og Ásmundar Örnólfssonar. All um það á HEIMASÍÐUNNI Næsta keppni er Hraðsveitakeppni sem er spiluð 02. 09. 16. og 23 mars.

miðvikudagur, 22. febrúar 2017

Rangæingar -- Fisksalinn kominn í höfn með hlaðinn bát

Nú er sveitakeppni félagsins lokið með glæsilegum sigri Fisksalanna fisléttu.   Í lokaumferðinni mættust Fisksalinn og Presturinn.   Prestakallarnir héldu vel við fram að predikun og munaði einungis 3 impum í hálfleik og allt gat gerst.

sunnudagur, 19. febrúar 2017

Briddsfélag Selfoss

Aðalsveita keppni briddsfélags Selfoss er nú í gangi. Lokið er tveimur umferðum af 5. Sveit Kristjáns Más er kominn með nokkuð þægilega forystu, en það er nóg eftir og munu menn sækja að þeim félögum.

sunnudagur, 19. febrúar 2017

Sveit GSE er Reykjanesmeistari en Bláa Kannan vann svæðismótið

Teykjanesmótinu í sveitakeppni var að ljúka rétt í þessu með sigri Bláu könnunar en GSE hlaut hins vegar Reykjanesmeistaratitilinn þar sem þeir höfðu tilskilinn fjölda spilara úr briddsfélögum á Reykjanessvæðinu.

sunnudagur, 19. febrúar 2017

HSK mótið í sveitakeppni -- úrslit

HSK mótið var spilað á Flúðum laugardaginn 18. febrúar.   Til leiks mættu 8 sveitir og spiluðu allir við alla, 8 spila leiki. Mótið vann með miklu öryggi bændasveitin TM-Selfossi, með 105,59 stig.

fimmtudagur, 16. febrúar 2017

AÐALTVÍMENINGUR BK Gulli og Ásmundur efstir

Þriðja kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Briddsfélags Kópavogs var spilað í kvöld.

fimmtudagur, 16. febrúar 2017

Rangæingar -- Flýgur fiskisalinn

Allt er þetta nú að hafast hvað varðar sveitakeppnina.   Sl. þriðjudag var leikin 6. og næstsíðasta umferð.      Slátrarinn mætti fisksölunum fljúgandi og freistaði þess að stöðva æðibunuganginn í þeim.

þriðjudagur, 31. janúar 2017

Sveit Lögfræðistofunnar sigraði Patton sveitakeppni BR 2017

Sveit Lögfræðistofunnar sigraði í Patton sveitakeppni BR 2017, en Jón Baldursson er þar á eftir.  Sjá öll nánari úrslit hér.

miðvikudagur, 25. janúar 2017

Rangæingar -- Enginn bilbugur á bóndanum

Við Rangæingar komum saman í gærkvöldi og lékum 3ju umferð í sveitakeppninni.  Engan bilbug er að finna á Kanastaðabóndanum, enda stýrir Silla þeim styrkri hendi.