Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
laugardagur, 19. janúar 2008

Reykjavíkumótinu í sveitkakeppni lokið

Sveit Enorma ; Sigfús Örn Árnason, Friðjón Þórhallsson, Hermann Lárusson, Þröstur Ingimarsson, Vilhjálmur Sigurðsson jr. og Jón Ingþórsson) unnu mótið nokkuð örugglega.

miðvikudagur, 16. janúar 2008

Bridgefélag Reykjavíkur að fara af stað

Nú klárast Reykjavíkurmótið á laugardag, 19.janúar og fyrsta spilakvöld BR á nýju ári verður þriðjudaginn 22.janúar. Fyrsta mótið er 3ja kvölda bötlertvímenningur en þetta keppnisform hefur verið afar vinsælt í BR undanfarin ár.

laugardagur, 29. desember 2007

Jólamót Bridgefélags Hafnafjarðar

Ísak Örn Sigurðsson on Gunnlaugur Karlsson unnu jólamót Bridgefélags Hafnafjarðar Sjá lokastöðu

miðvikudagur, 19. desember 2007

KEA-hangikjötstvímenningur

Síðasta spilakvöld Bridgefélags Akureyrar fyrir jól var að venju eins kvölds tvímenningur með KEA-hangikjöt og reyktan magál í verðlaun. Í upphafi var afmælissöngurinn sunginn af krafti fyrir Frímann Stefáns sem bauð upp á jólasmábrauð í tilefni dagsins.

laugardagur, 15. desember 2007

Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar

fimmtudagur, 13. desember 2007

Pétur og Jónas Akureyrarmeistarar

Akureyrarmótinu í tvímenning lauk hjá Bridgefélagi Akureyrar síðasta þriðjudag. Á lokasprettinum höfðu Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson betur í baráttunni um titilinn við þá Gylfa Pálsson og Helga Steinsson, sem efstir voru þegar spilamennska hófst.

miðvikudagur, 12. desember 2007

Cavendish - tvímenning BR lokið

Ómar Freyr Ómarsson og Örlygur Már Örlygsson unnu Cavendish tvímenning BR sem lauk þriðjudaginn 11.desember. Gunnlaugur Sævarsson og Runólfur Jónsson skoruðu grimmt síðasta kvöldið og voru nálægt því að skjótast á toppinn1. Ómar Freyr Ómarsson - Örlygur Már Örlygsson 14522. Gunnlaugur Sævarsson - Runólfur Jónsson        13023. Gísli Steingrímsson - Sveinn Þorvaldsson             1080 4. Jónas P.

föstudagur, 7. desember 2007

Bridgefélag Akureyrar

fimmtudagur, 6. desember 2007

Miðvikudagskúbburinn: Kristín Óskarsdóttir og Lilja Kristjánsdóttir efstar!

  Öll úrslit og upplýsingar á heimasíðu Miðvikudagsklúbbsins

fimmtudagur, 6. desember 2007

BH: Sveit Guðlaugs Bessasonar leiðir Aðalsveitakeppnina eftir 1 kvöld!

Sveit Guðlaugs Bessasonar er efst eftir 2 umferðir af 9 í Aðalsveitakeppni BH. Næsta kvöld eru spilaðar umferðir 3 og 4.

föstudagur, 30. nóvember 2007

Akureyrarmót í tvímenningi

Pétur og Jónas á toppinn Að hálfnuðu móti hefur röð efstu para breyst nokkuð eftir sviftingar síðasta spilakvölds. Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson skoruðu mest og náðu efsta sætinu af Helga Steinssyni og Gylfa Pálssyni.

fimmtudagur, 29. nóvember 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Ásdís Matthíasdóttir og Þórey Eiríksdóttir efstar með 59.9%

Ásdís Matthíasdóttir og Þórey Eiríksdóttir efstar með 59,9% Í 2. sæti voru Inda Hrönn Björnsdóttir og Svala Pálsdóttir með 55.2% og í 3. sæti Eggert Bergsson og Kolbrún Guðveigsdótti Efsta parið fékk flottar ostakörfur frá Osta og smjörsölunni 2.

fimmtudagur, 29. nóvember 2007

Bf. Hafnarfjarðar: Sveit Indu með öruggan sigur!!

Sveit Indu sigraði Hraðsveitakeppni BH með +109. Sveit Guðlaugs Sveit Guðlaugs Sveinsson var í 2. sæti með +23 og sveit Sigurðar Sigurjónsson í 3.sæti með +17Í sveit Indu spiluðu: Inda Hrönn Björnsdóttir, Grímur Kristinsson, Jóhann Sigurðason og Gabríel GíslasonÖll úrslit hægt að nálgast á heimasíðu BH   Næsta keppni félagsins er Aðalsveitakeppni.

þriðjudagur, 27. nóvember 2007

Bridgefélag Reykjavíkur - Cavendish-tvímenningur að hefjast í kvöld!

3ja kvölda Cavendish tvímenningur(imps across the field) hefst hjá Bridgefélagi Reykjavíkur í kvöld! Þetta spilaform hefur verið gríðarlega vinsælt undanfarin ár og mikið um sveiflur og fjör.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Ragnheiður Nielsen og Ómar á toppnum!

Ragnheiður Nielsen og Ómar Olgeirsson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með 64.7% skor. Fengu þau ostakörfur frá Osta og Smjörsölunni í verðlaun.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Sveit Sigurðar Sigurjónssonar efst í Hraðsveitakeppni BH

Sveit Sigurðar Sigurjónssonar er efst eftir eitt kvöld af tveimur í Hraðsveitakeppni BH. Með Sigurði spiluðu Halldór Einarsson, Guðbrandur Sigurbergsson og Ásgeir Ásbjörnsson.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Bændur í stuði

Bændur í stuði hjá B.A. Akureyrarmót í tvímenningi, fjögurra kvölda barometer, hófst hjá B.A. á þriðjudagskvöldið með þátttöku 14 para. Spiluð verður tvöföld umferð.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Hraðsveitakeppni BR lokið

Sveit kennd við Pál Þórsson kennara vann hraðsveitakeppni BR.  Í öðru sæti kom sveit kennd við Pál Valdimarsson línumann.  Í þriðja sæti sveit Grant Thornton Bókara.

miðvikudagur, 31. október 2007

Fast sótt hjá BA

Fast sótt hjá B.A. Hraðsveitakeppni Sparisjóðs Norðlendinga hófst hjá Bridgefélagi Akureyrar þriðjudaginn 30. okt. í hríðarveðri. Ekki væsti þó um spilarana og ekki lét Pétur Gíslason í Hótel Reykjahlíð veðrið aftra sér frá þátttöku þótt um 100 km leið væri að fara.

fimmtudagur, 25. október 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Jón Jóhannsson og Sturlaugur Eyjólfsson sigruðu!

22 pör mættu til leiks í Miðvikudagsklúbbinn 24. október.Jón Jóhannsson og Sturlaugur Eyjólfsson báru sigur úr býtum. Þeir fengu konfektkassa og fleira frá O.