Fréttir
Jólamót BR og SPRON
Minningarmót Harðar Þórðarsonar. Sigurvegarar Jólamóts BR og SPRON voru Sverrir Krsitinsson jr. og Páll Valdimarsson, í öðru sæti voru sigurvegararnir frá því í fyrra Helgi G.
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar
Jólakveðja frá BR
Fjöldinn allur af jólasveinum mætti til leiks í jólasveinatvímenning BR. Dregin voru út ótal verðlaun og flestir jólasveinarnir fóru með eitthvað góðgæti til fjalla.
KEA hangikjötstvímenningur
KEA hangikjötstvímenningur Síðasta þriðjudag fyrir jól kepptust félagar B.A. við að vinna sér inn KEA hangikjöt í eins kvölds tvímenningi en afar mjótt var á munum í toppbaráttunni.
Jólamót BH og Sparisjóðs Hafnarfjarðar
Jólamót BH og Sparisjóðs Hafnarfjarðar verður haldið fimmtudaginn 28. desember og hefst kl 17:00. Spilað að Flatahrauni 3 Hafnarfirði, Hraunsel.
Hraðsveitakeppni lokið hjá B.A.
Nú er lokið þriðja og síðasta kvöldinu í Hraðsveitakeppni Sparisjóðs Norðlendinga. Sveit Soffíu gerði harða atlögu að forystu sveitar Frímanns en það dugði ekki til.
Miðvikudagsklúbburinn: Erla og Sigfús nældu sér í birkireykt hangikjöt
Erla og Sigfús náðu 66,5% skor og unnu kvöldið með yfirburðum. Næst voru Hrund Einarsdóttir og Vilhjálmur Sigurðsson JR með 60,6%. Erla og Sigfús fengu birkireykt hangikjöt og með því frá SS fyrir 1. sætið, og Hrund og Villi fengu ostakörfur frá Osta og Smjörsölunni fyrir 2. sætið.
Miðvikudagsklúbburinn: Erla og Lovísa í banastuði með 61,4%
Erla Sigvaldadóttir og Lovísa Jóhannsdóttir unnu 18 para tvímenning 29. nóvember. Þær skoruðu 61,4% og fengu í verðlaun körfur frá osta og smjörsölunni.
BR - Guðmundur Sv. Hermannson og Helgi Jóhannsson lang efstir í Cavendish tvímenningi
30 pör taka þátt í Cavendish tvímenningi hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Guðmundur Sv. Hermannsson og Helgi Jóhannsson eru lang efstir eftir fyrsta kvöld af þremur.
Vantar par til að fylla yfirsetu hjá BR
Nú vantar par til að fylla yfirsetu í Cavendish-tvímenning BR sem hófst þann 28.11. Tvö kvöld eru eftir. Þeir er óska eftir þátttöku í mótinu snúa sér til Björgvins í síma 860-2023.FYRSTIR KOMA, FYRSTIR FÁ.
Bridgefélag Selfoss - Hraðsveitakeppni hafin og Sigfúsarmótið búið
Sigfúsarmótinu lauk 16. nóvember sl. með öruggum sigri Guðjóns Einarssonar og Björns Snorrasonar. Í öðru sæti urðu Guðmundur Gunnarsson og Daníel Már Sigurðsson og í þriðja sæti Þröstur Árnason og Ríkharður Sverrisson.
Akureyrarmeistarar í tvímenningi
Síðastliðinn þriðjudag lauk fjögurra kvölda Akureyrarmóti í tvímenningi 2006 en það var afar spennandi. Efstu tvö pörin skoruðu gríðarlega seinni tvö kvöldin en nýkrýndir meistarar voru aðeins einu sinni í efsta sæti í mótinu en það var eftir síðustu setu! Lokastaða: 1. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson - Haukur Harðarson +81 2. Jónas Róbertsson - Pétur Guðjónsson +79 3. Stefán Vilhjálmsson - Hermann Huijbens - Guðmundur Gunnlaugsson +48 4. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +41 5. Sigurður Erlingsson - Sigurður Björgvinsson - Hjalti Bergmann +36 Frammistaða 4. kvöldið: 1. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson +41 2. Jónas Róbertsson - Pétur Guðjónsson +24 3. Stefán Sveinbjörnsson - Ragnheiður Haraldsdóttir +18 4. Valmar Valjoets - Pétur Gíslason +8 5.
Miðvikudagsklúbburinn: Jón og Rúnar unnu 21 para tvímenning!!
Jón Ingþórsson og Rúnar Gunnarsson voru efstir meðal jafningja hjá Miðvikudagsklúbbnum 22. nóvember. Þeir unnu 21 para tvímenning, en aðeins munaði 2,4% niður í 6. sæti.
Dröfn og Hrund efstar hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar
Verið er að spila Aðaltvímenning BH.Staðan eftir 1 kvöld af 4 er:Hrund Einarsdóttir - Dröfn Guðmundsdóttir 18Gunnlaugur Sævarsson - Hermann Friðriksson 14 Atli Hjartarson - Hafþór Kristjánsson 10Guðlaugur Sveinsson - Halldór Þorvaldsson 3 Friðþjófur Einarsson - Guðbrandur Sigurbergsson 2 Aðrir undir miðlung Keppnin heldur áfram næsta mánudag.
BR - Öruggur sigur Hermanns Friðrikssonar í hraðsveitakeppni
Sveit Hermanns Friðrikssonar sigraði með nokkrum yfirburðum í hraðsveitakeppni BR en sveitin fékk hæsta kvöldskorið öll þrjú kvöldin! Í sveitinni spiluðu Hermann Friðriksson, Ómar Olgeirsson, Hlynur Angantýsson, Vilhjálmur Sigurðsson jr.
Sveit Sigfúsar Þórðarsonar vann hraðsveitakeppnina hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar
Lokastaðan Röð Sveit Stig 1 Sigfús Þórðarson 1153 2 Hulduherinn 1118 2 Hrund Einarsdóttir 1118 4 Hafþór Kristjánsson 1055 4 Blanda 1055 6 SPK 1048 7 Kristín Þórarinsdóttir 1013
Sveit Hrundar langefst hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar
Sveit Hrundar langefst hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar
Heildarstaðan Röð Sveit Stig */- 1 Hrund 600 60 2 Sigfús 556 16 3 Hulduherinn 549 9 4 Blanda 537 -3 5 SPK 532 -8 6 Hafþór 522 -18 7 Kristín 484 -56 Keppnin heldur áfram næsta mánudag.
Sigfúsarmótið hafið hjá Bridgefélagi Selfoss
Sigfúsarmótið, sem er aðaltvímenningur félagsins, hófst fimmtudagskvöldið 2. október. Í mótinu taka 16 pör þátt og eru spiluð 2 spil á milli para, allir við alla á kvöldi.
Miðvikudagsklúbburinn: Páll og Ómar skelltu sér á toppinn í lokin og unnu sér inn gjafabréf á Lauga-Ás
Það var fín mæting hjá Miðvikudagsklúbbnum 25. október. 20 pör spiluðu Monrad Barometer, og var notast við BridgeMate við útreikning. Páll Þórsson og Ómar Olgeirsson sigruðu með 61,1% skor og fengu gjafabréf á Lauga-Ás fyrir 4. 2. sætið kom í hlut Geirlaugar Magnúsdóttur og Torfa Axelssonar sem hrepptu 2 konfektkassa og sælgæti.