Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir 2006

fimmtudagur, 26. október 2006

DEILDAKEPPNIN

Eykt vann n�sta �ruggan sigur � fyrstu deild me� 259 stig, Esja kj�tvinnsla n��i fyrsta s�ti � 2. deild me� 238 stig og Gunnar Bj�rn Helgason fyrsta s�ti � 3. deild me� 250 stig.

miðvikudagur, 25. október 2006

Ársþing Bridgesambands Íslands

Ársþing Bridgesambands Íslands var haldið sunnudaginn 22. október.

föstudagur, 20. október 2006

Einmenningur 2006

laugardagur, 14. október 2006

Esther Jakobsdóttir og Dóra Axelsdóttir Íslandsmeistarar í tvímenning kvenna 2006

Esther Jakobsdóttir og Dóra Axelsdóttir eru Íslandsmeistarar kvenna í tvímenning 2006. Þær höfðu forystu allan seinni hlutann í mótinu og unnu með næstum 4% forskot á 2. sætið.

miðvikudagur, 11. október 2006

CHAMPIONS CUP Á ÍTALÍU

Landsmeistarar 10 efstu þjóðanna á Evrópumótinu etja kappi ­ Róm á Ítal­u. Champions Cup byrjar fimmtudaginn 12. október og klárast á sunnudag, 15.október.

þriðjudagur, 10. október 2006

Greifarleg spenna hjá B.A.

Hið sívinsæla Greifamót B.A. er hafið en það er þriggja kvölda impatvímenningur. Verðlaunahafar munu fá að skreppa út á borða á Greifann, eitt vinsælasta veitingahús norðan Holtavörðuheiðar svo til mikils er að vinna! Enda komu spilarar allt frá Dalvík til Mývatns.

mánudagur, 9. október 2006

EYKT EFST Í SHELL- DEILDAKEPPNINNI

Í efstu deild er sveit Eyktar með forystu með 137 stig, sveit Garða og véla er í öðru sæti með 120 stig og sveit Grant Thornton í þriðja sæti með 118 stig.

miðvikudagur, 4. október 2006

Startmót Sjóvá enn að jafna sig!

Seinna kvöldi Startmóts Sjóvá hjá Bridgefélagi Akureyrar er nýlokið en annar eins "jafningur" hefur vart sést. Athugli vakti að ekkert að þeim pörum sem fékk bronsstig fyrra kvöldið náði því seinna kvöldið og því var baráttan hörð um verðlaunasæti.

miðvikudagur, 27. september 2006

SHELL-DEILDAKEPPNIN 2006

Deildakeppnin ver�ur spilu� helgarnar 7.-8. okt�ber og 28.-29. okt�ber. A� venju ver�ur spila� � �remur deildum. Spilamennska hefst um klukkan 11:00 laugardagana og l�kur um klukkan 19:15 en � sunnud�gum klukkan 10:00-15:45. Keppnisgjald er kr�nur 24.000 � sveit.

þriðjudagur, 26. september 2006

Eitt allra jafnasta mót allra tíma!

Fyrsta mót Bridgefélags Akureyrar í vetur er hafið en það er Startmót Sjóvá með þáttöku 14 para. Elstu menn voru spurðir álits og töldu þeir að svo jöfnu móti myndu þeir vart eftir.

sunnudagur, 24. september 2006

ÞRÍR FRAKKAR BIKARMEISTARAR

Þrír frakkar náðu að landa næsta öruggum sigri í úrslitaleik Bikarkeppninar með 175 impum gegn 71 á móti Hermanni Friðrikssyni. Sveit Hermanns gaf reyndar leikinn eftir 3 lotur þegar munaði 104 impum.

laugardagur, 23. september 2006

Bikarúrslit byrja kl. 11 sunnudag- sýnt á Bridgebase

Undanúrslit: LOKASTAÐAN Sveit Orkuveitu Reykjavíkur gaf sinn leik eftir 2. lotu þá komnir 114 impum undir Sveit Þriggja Frakka sigraði Garðar og vélar 168-75 Þrír Frakkar spila úrslitaleikinn við sveit Hermanns Friðrikssonar.

miðvikudagur, 20. september 2006

Aðalfundur B.A. 2006 og úrslit

Aðalfundur B.A. 2006 var haldinn 19.september og m.a. var ný stjórn kjörin: Stjórn BA 2006-2007 Stefán Vilhjálmsson, formaður Hermann Huijbens, varaformaður Brynja Friðfinnsdóttir, gjaldkeri Frímann Stefánsson, ritari Víðir Jónsson, áhaldavörður Stefán Sveinbjörnsson, varamaður Sigfús Aðalsteinsson, varamaður Er nýkjörinni stjórn óskað velfarnaðar í starfi.

miðvikudagur, 20. september 2006

B.A. býður til Startmóts Sjóvá!

Bridgefélag Akureyrar hefur ákveðið að bjóða til ókeypis bridgeveislu í upphafi keppnistímabilsins. Þriðjudaginn 26.september hefst tveggja kvölda tvímenningsmót, Startmót Sjóvá, og til að byrja tímabilið að krafti verður ekkert keppnisgjald innheimt.

sunnudagur, 17. september 2006

Bridgehátíð sumarbridge

Magnús Sverrisson og Jörundur Þórðarson sigruðu í tvímenningnum! Lokastaðan hér 2. Karl G. Karlsson-Gunnlaugur Sævarsson, 1. Jörundur Þórðarson-Magnús Sverrisson 3. Jón Ágúst Guðmundsson-Kristján B.

laugardagur, 16. september 2006

ÚRSLIT BIKARKEPPNI BSÍ

Úrslit bikarkeppni BSÍ verða spiluð helgina 23.-24. september í húsnæði BSÍ að Síðumúla 37. Í undanúrslitum verða spiluð 48 spil og eigast þar við sveitir Garða og véla-Þriggja frakka annars vegar og hins vegar sveitir Orkuveitarinnar- Hermanns Friðrikssonar.

fimmtudagur, 7. september 2006

NÝ MÓTASKRÁ

Mótaskráin fyrir tímabilið 2006-2007 er komin út og má finna hér til vinstri á síðunni og einnig hér. Breyting 14.sept 2006: Leiðréttar dagsetningar á Íslandmótinu í sveitakeppni, Kjördæmamót 12-13. maí og paratvímenningur 26-27. maí.

miðvikudagur, 6. september 2006

8. liða úrslit Bikarkeppni Bridgesambands Íslands

Eftirtaldar sveitir spila innbyrðis í fjórðungsúrslitum bikarkeppni Bridgesambands Íslands.

föstudagur, 1. september 2006

Bridgefélag Reykjavíkur - Dagskrá haust 2006

Nú fer að koma tími til að setja golfsettin inn í geymslu og setjast við spilaborðið! Bridgefélag Reykavíkur mun spila á þriðjudögum og föstudögum í vetur í Síðumúla 37 og hefst spilamennska alltaf kl.

laugardagur, 12. ágúst 2006

Útsendingar frá EM

Ísland varð að sætta sig við 7. sætið á EM í Póllandi sem lauk laugardaginn 26. ágúst. Sex efstu þjóðirnar unnu sér rétt til spilamennsku á HM. Aðeins munaði 7 stigum á 6. og 7. sæti sem kom í hlut Pólverja.