Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir

fimmtudagur, 8. febrúar 2007

STJÖRNUHRAÐSVEITAKEPPNI

Nú er orðið ljóst hverjir spila í stjörnuhraðsveitakeppninni sem spiluð verður í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudagskvöldið 14. febrúar. Búið er að velja 16 pör til að spila annan vænginn í hraðsveitakeppninni, 13 erlend pör og 3 íslensk landsliðspör.

miðvikudagur, 7. febrúar 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Guðni Ingvarsson og Guðlaugur Bessason með 64,7% skor!

Guðni Ingvarsson og Guðlaugur Bessason unnu sér inn glæsileg gjafabréf með góðu skori í Miðvikudagsklúbbnum. Þeir voru efstir með 64,7%. Næstir voru Halldór Ármannsson og Gísli Sigurkarlsson með 62,5% og fengu þeir hágæða plastbspil og glaðining frá Sambó.

þriðjudagur, 6. febrúar 2007

6. febrúar

3. Stjórnarfundur BSÍ Haldinn þriðjudaginn 6. febrúar 2007 kl 17:15.  Mættir voru: Guðmundur Baldursson, Garðar Garðarsson, Helgi Bogason, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Örn Sigurðsson, Kristján Blöndal, Loftur Þór Pétursson, Ómar Olgeirsson, Stefanía Sigurbjörnsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson.

þriðjudagur, 6. febrúar 2007

Sveit Högna Friðþjófssonar sigraði mjög örugglega hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar

Lokastaðan eftir 7 umferðir ( 4 efstu) : 1. Högni Friðþjófsson          1452. Guðlaugur Bessason       1203. Hulduherinn                    1134. Hrund Einarsdóttir          104 Sannarlega glæsilegur árangur hjá sveit Högna.

þriðjudagur, 6. febrúar 2007

BR - 3ja kvölda bötler

Mikil spenna var fyrir síðustu umferð í bötlertvímenningi BR en 4-5 pör áttu möguleika á að vinna. Daníel Már Sigurðsson og Stefán Jóhannsson fengu góða setu og stóðu uppi sem sigurvegarar.

föstudagur, 2. febrúar 2007

SKRÁ SIG Í TÍMA

Húsnæðið á Hótel Loftleiðum rúmar aðeins ákveðinn fjölda og vegna þess hve skráning hefur gengið vel fram að þessu, eru menn beðnir um að skrá sig í tíma.

fimmtudagur, 1. febrúar 2007

GLÆSIMÁLTÍÐ Í PERLUNNI

Bridgesamband Íslands hefur pantað mat fyrir 100 manns í Perlunni, eftir lok tvímenningskeppninnar föstudaginn 16. febrúar klukkan 19:30. Boðið er upp á glæsilega fjögurra rétta máltið fyrir 4.990 krónur án víns.

þriðjudagur, 30. janúar 2007

Högni Friðþjófsson leiðir hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar

Sveit Högna Friðþjófssonar leiðir örugglega hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar með 97 stig eftir 5 leiki af 7. Tveir leikir eru eftir. Sjá ennfremur Bf.

mánudagur, 29. janúar 2007

Reykjanesmótið í sveitakeppni

Reykjanesmótið í sveitakeppni fór fram nú um helgina, 27. -28. janúar. Sveit Sparisjóðs Keflavíkur sigraði nokkuð örugglega. Spilarar í sveit Sparisjóðsins voru Garðar Garðarsson, Arnór Ragnarsson, Karl G.

miðvikudagur, 24. janúar 2007

BRIDGEHÁTÍÐ 2007

Bridgehátíð 2007 verður haldin dagana 15.-18. febrúar næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Skráning er þegar hafin og hægt að skrá sig hér á síðunni. Keppnisgjald í tvímenning: 12.000 á parið Keppnisgjald í sveitakeppni: 26.000 á sveitina Keppendur sem skrá sig eru vinsamlega beðnir um að gefa upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölu vegna greiðslu keppnisgjalds.

þriðjudagur, 23. janúar 2007

Suðurlandsmótið í sveitakeppni - úrslit

Frá Bridgesambandi Suðurlands Suðurlandsmótið í sveitakeppni var haldið helgina 20. - 21. janúar sl.

mánudagur, 22. janúar 2007

Bötlertvímenningur að byrja í BR á morgun!

Þriggja kvölda bötlertvímenningur hefst á morgun, þriðjudaginn 23. janúar. Tilvalið að æfa vel fyrir Bridgehátíð sem er um miðjan febrúar.

mánudagur, 22. janúar 2007

Svæðamót Reykjaness í sveitakeppni næstu helgi!

Svæðamót Reykjaness í sveitakeppni fer fram næstu helgi, 27.-28. janúar. Spilað er í Kópavogi, nánar tiltekið Þinghóli, Hamraborg 11. Spilamennska hefst á laugardag kl.

mánudagur, 22. janúar 2007

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2007

Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni lauk um síðustu helgi. Þrjár sveitir háðu harða baráttu um titilinn en á lokasprettinum reyndist Eyktarsveitin sterkust og varði þar með titilinn.

fimmtudagur, 18. janúar 2007

Akureyrarmót í sveitakeppni

Eftir eftir tvö kvöld af fimm , eða 4 umferðir, í Akureyrarmótinu í sveitakeppni eru línur eitthvað farnar að skýrast en efstu sveitir eru: 1. Sv.

miðvikudagur, 17. janúar 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Emma og Davíð með 64,6% skor!!

Emma Axelsdóttir og Davíð Lúðvíksson unnu öruggan sigur með +49 sem jafngildir 64,6% skori. Þau fengu glæsileg gjafabréf hjá Veitingastaðnum Lauga-Ás.

fimmtudagur, 4. janúar 2007

FÖSTUDAGSBRIDGE BYRJAR 12. JANÚAR

Föstudagsbridge hefur starfsemi sína 12. janúar. Bridgesamband Íslands hefur tekið að sér rekstur Föstudagsbridge, sem áður var á höndum Bridgefélags Reykjavíkur.

miðvikudagur, 3. janúar 2007

GLEÐILEGT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA!

Gleðilegt ár kæru spilarar! Árið fer fjörlega af stað í bridgelífinu að vanda. HSK mót á Selfossi fimmtudaginn 4.janúarBridgehátíð í Borgarnesi næstu helgiReykjavíkurmótið 9-21.janúar-Heimasíða mótsins  Sjá nánar um öll svæðamót framundan hér  Svæðaformenn og/eða keppnisstjórar eru hvattir til að setja fréttir um úrslit svæðamóta inn á heimasíðu bridge.

sunnudagur, 31. desember 2006

Glitnismót B.A. 2006

Hið árlega jólamót B.A., Glitnismótið, fór fram laugardaginn 30 desember. Þáttaka var mjög góð eða 35 pör sem er fjölgun um 7 pör frá því á síðasta ári.

laugardagur, 30. desember 2006

Jólamót BR og SPRON

Minningarmót Harðar Þórðarsonar. Sigurvegarar Jólamóts BR og SPRON voru Sverrir Krsitinsson jr. og Páll Valdimarsson, í öðru sæti voru sigurvegararnir frá því í fyrra Helgi G.