Næsta mánudag verður haldinn einskvölds einmenningur. Vegleg (Bragð)góð veðlaun. Mætum með bros á vör og hlæjum svolítið með spilamennskunni.
Í landsliðskeppni kvenna um síðustu helgi urðu hlutskarpastar pörin Anna Ívarsdóttir - Guðrún Óskarsdóttir og Svala Pálsdóttir og Arngunnur Jónsdóttir og hafa þær unni sér rétt til að spila í landsliðinu í kvennaflokki á Heimsmótinu í september 2016 3ja parið verður valið af landsliðsnefnd og þjálfara liðsins fyrir 15.apríl n.
Mér datt í hug þessi vísa þagar úrslitin lágu fyrir. Hafnfirðingar hýrir í húsi rauðu. Á einu borði skiluðu þeir auðu. Sögðu þeir og svínuðu mest sóló.
Núna er Meistaratvímenningi lokið á Suðurnesjum og var þáttaka svona þokkaleg. Úrslit og spil hægt að sjá hér. Næst ætlum við að spila þriggja kvölda sveitarokk þar sem 2 kvöld telja.
Þeir Magnús, Gísli, Gunnar Björn og Björn sigruðu aðalsveitakeppni félagsins, þrátt fyrir harða atlögu frá Kristjáni Má og félögum. Næsta mót félagsins er þriggja kvölda tvímenningur.
Eftir tvö kvöld af fjórum í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er sveit Sverris sterka efst með 1044 stig en næstu sveitir eru með 1014 og 1016 stig.
Stefán Sigurðsson og Elías Einarsson unnu með 64,8%. Jón Óskar Carlsson og Karl Ómar Jónsson voru í 2. sæti með 60,2% og í 3ja sæti voru Hermann Friðriksson og Ingólfur Hlynsson.
Spilastjóri má vart mæla enn, slík var spennan í síðustu umferð sveitakeppninnar hjá okkur Rangæingum. Eins og menn muna, alla vega þeir minnugri, gátu 5 sveitir af 8 unnið sveitakeppnina þegar síðasta umferðin hófst.
Röð þriggja efstu sveita breyttist ekki á fjórða kvöldi aðalsveitakeppninnar. JE Skjanni heldur efsta sætinu og Kvika og Garðsapótek koma þar á eftir.
Lokastaðan
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar