Fyrsta verkefni í landsliðskeppni opna flokksins er um helgina en þeir Jón, Bessi, Svenni og Þröstur spila á boðsmóti í Moskvu Spilamennska hefst kl.
32 pör spiluðu tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum. Guðmundur Sigursteinsson og Björn Árnason voru í miklu stuði og unnu kvödið með 67,7%. Í 2. sæti voru Halldór Már Sverrisson og Hermann Friðriksson með 61,2% og í 3ja sæti enduðu Guðrún Jörgensen og Garðar Valur Jónsson.
Reykjanesmótið í sveitakeppni fer fram helgina 20-21 febrúar 2016. Spilamennska hefst kl. 11.00 á laugardeginum en kl. 10 á sunnudeginum. Keppt verður um sex sæti í Undanúrslitum Íslandsmótsins sem verða haldin 8-10 apríl.
Enn takast menn og konur á við spilaborðið á Heimalandi, heimavelli okkar Rangæinga. Sl. þriðjudagskvöld var leikin 5. umferð af 7 í sveitakeppni félagsins.
Vesturlandsmót í sveitakeppni: úrslit.
Þriggja kvölda hraðsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar hefst mánudagskvöldið 15.02.2016. Skráning á staðnum. Stjórnin.
Aðalsveitakeppni félagsins hófst í gær með þátttöku 5 sveita. Lang efstir eftir fyrsta kvöldið eru þeir Björn, Gunnar Björn, Magnús og Pálmi. Mótið er 4 kvöld svo menn hafa tíma til að koma sér í gang.
Annað kvöldið af þremur í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Öll úrslit hér.
Sl. þriðjudagskvöld hrjáðu veikindi Rangæinga, eins og fleiri landsmenn þessa dagana. Því voru óvanalega mikil forföll þegar 4. umferð sveitakeppninnar var leikin.
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands 14. janúar kl. 18:00 Mættir: Guðný, Jafet, Guðmundur, Ólöf, Árni Már, Anna, Júlíus og Ingimundur 1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt 2. Reykjavík Bridge festival.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar