Tveggjakvölda jólaeinmenningur hófst s.l. fimmtudag með þátttöku 20 spilara. Menn mæta í jólaskapi og gefa gjafir og þiggja gjafir, þó ekki hafi verið jafnvægi í því hjá öllum.
Sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur sigraði í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs sem lauk í gærkvöldi. Þau fengu 11,64 stigum meira en sveit Guðlaugs Bessasonar í 13 umferðum sem gerir 0,89 stigum meira í hverri umferð.
Sl. þriðjudagskvöld var fimmta og síðasta umferðin í 5 kvölda Butler félagsins leikin. Ellarnir, ungir menn á uppleið, eru að komast á gríðarlegt skrið.
Þá er lokið Akureyrarmótinu í tvímenning 2013 en lokakvöldið voru 3 pör í 1.sæti meðan á því stóð. Að lokum urðu það Ævar Ármannsson og Árni Bjarnason sem hömpuðu titlinum.
Gústi vert hélt skemmtilegt jólamót með veglegum vinningum föstudaginn 6.desember. Því lauk með sigri Frímanns Stefánssonar og Reynir Helgasonar.
Bland.com skaust á toppinn með 81,20 stig eftir 6 umferðir af 11 í Aðalsveitakeppni BH. Sveit Gabríel Gíslasonar er í 2. sæti með 78,58 stig og í 3ja sæti er Miðvikudagsklúbburinn með 75,36 stig.
Ljósbrá Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson unnu Íslandsmótið í Butler tvímenning sem var spilað á laugardaginn 7. desember. Þau skoruðu 68 impa og voru með nokkuð örugga forystu síðasta þriðjung mótsins.
Jón Baldursson og Sigurbjörn Haraldsson unnu Íslandsmótið í sagnkeppni 2013. Þeir fengu 2440 stig af 3000 mögulegum sem jafngilti 81,5%. Í 2. sæti aðeins 10 stigum á eftir voru Helgi Sigurðsson og Haukur Ingason.
Þegar aðeins er eftir að spila þrettándu og síðustu umferðina í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru tvær sveitir sem enn geta borið sigur úr bítum.
Ekki náði neinn að ógna þeim Kristjáni Má og Gísla á toppnum, og enduðu þeir kappar sem öruggir sigurvegarar Sigfúsartvímenningsins. Öllu meiri keppni var um næstu sæti, en þeir Guðjón og Vilhjálmur náðu öðrusætinu eftir mikla baráttu.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar