Nemendur í bridds áföngunum 172 og 272 fengu góða gesti til sín og slegið var upp móti í Fjölbrautarskólanum í tilefni annarloka hjá þeim. Flottir nemendur og vonandi eiga þeir eftir að sigra bridge-heiminn.
Föstudaginn 6.desember verður haldið tvímenningsmót á veitingastaðnum Við höfnina hjá Gústa vert á Dalvík. Þetta verður mjög skemmtilegt mót ef það verður í líkingu við það síðasta sem þar var haldið.
Sl. þriðjudagskvöld var leikin 3. umferð í BUTLER-tvímenningi félagsins. Sundmaðurinn ógurlegi og "nafni minn" voru góðir, eins og svo oft áður.
Hörð barátta er í Akureyrarmótinu í tvímenning en annað kvöldið unnu naumlega Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson rétt á unan Birni Þorlákssyni og Jónasi Róbertssyni.
Sveitin mín er efst eftir tvær umferðir í aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar.
Þetta var mjótt á munum. en þeir fengu stóra skor í síðustu umferð. Sigurvegar kvöldsins voru Anton og Sævar með 93 stig.
Það urðu sviptingar á toppnum í sigfúsartvímenningnum á Selfossi. Kristján og Gísli eru eftstir þegar mótið er hálfnað. Ljóst er að margir munu gera atlögu að þeim félögum.
Sjöunda og áttunda umferð í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs voru spilaðar í kvöld. Staðan á toppnum hefur heldur jafnast og sveitir sem voru um miðja töflu náðu góðum sigrum.
•1. Fundur nýrrar stjórnar Bridgesambands Íslands, haldinn 20. nóvember, 2013 kl. 16.00 Mætt voru: Jafet, Ólöf, Árni Már, Garðar, Guðný, Helga, Guðmundur og Ingimundur.
Ingimundur Jónsson og Jón Viðar Jónmundsson unnu 33 para Monrad Barómeter tvímenning með 64,1% skor. Í 2. sæti voru Guðlaugur Sveinsson og Brynjar Jónsson og 3ja sæti varð hlutskipti Þorgerðar Jónsdóttur og Aðalsteins Jörgensen.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar