Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson urðu efstir á öðru köldinu í SuperSub-impamótinu hjá Bridgefélagi Kópavogs nú í kvöld. Þeir feðgar náðu risaskori, 96 impa í plús og 42 impum meira en næsta par.
Ásgeir Ingvi Jónsson og Sigurður G. Sigurðsson unnu 26 para tvímenning með 64%. Rétt á hæla þeim í 2. sæti voru Hulda Hjálmarsdóttir og Unnar Atli Guðmundsson með 62,9%.
Þá fer dagskráin á Suðurnesjum á fullt. Byrjum þetta á þriggja kvölda tvímenning þar sem tvö kvöld telja. Hvetjum hvort annað til að mæta og að sjálfsögðu er heitt á könnunni.
Hrund Einarsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir unnu Gamla vínhús butler tvímenning félagsins. Þær skuturst upp fyrir Guðbrand og Friðþjóf síðasta kvöldið í heidarstöðunni en þar giltu 2 bestu kvöldin af 3. Þær fengu 89 impa, sem var 4 impum meira en Guðbrandur og Friðþjófur sem enduðu í 3ja sæti.
Ársþing BSÍ 20.október 2013 kl. 13:00 Ársþing BSÍ verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands sunnudaginn 20.okt. og hefst klukkan 13:00. Félög innan hreyfingarinnar hafa setu- og atkvæðisrétt á þinginu samkvæmt kvótaútreikningi skilagreina en áheyrnarfulltrúar eru velkomnir að sitja þingið.
Esther Jakobsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir eru Íslandsmeistar kvenna í tvímenning 2013 með 59,6 % skor Í 2 sæti urðu Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir með 55.7 % skor og í 3.
Úrslit og spil kvöldsins má sjá hér Lokastöðuna í Butlernum má svo sjá hér
Ragnar Magnússon og Valgarð Blöndal eru Jólasveinar BR 2013. Valgarð er að endurtaka sama leik og í fyrra þegar hann sigrði einnig.
Þegar 2 kvöldum af 3 er lokið í Suðurgarðsmótinu eru Björn Snorrason og Guðmundur Þór Gunnarsson efstir með 60,7% skor. Í öðru sæti eru Anton og Pétur Hartmannssynir með 58,6& skor og í þriðja sæti eru Kristján Már Gunnarsson og Vilhjálmur Þór Pálsson með 56% skor.
Friðjón Þórhallsson og Sigtryggur Sigurðsson náðu góðri forystu á fyrsta kvöldinu af þremur á SuperSub-impamótinu sem hófst í kvöld.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar