Þeir sem náðu besta kvöldskori voru þeir Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson með 63,0% og hnepptu því stærsta hangikjötsbitann frá KEA þetta árið.
Valgarð Blöndal kom á klakann og vann fyrsta mótið sem hann mætti á hjá BR ásamt Vali Sigurðssyni.
í kvöld verður spilaður eins kvölds tvímenningur í BR. Flottir aukavinningar dregnir út. Allir sem spila með jólasveinahúfu eiga möguleika á útdráttarverðlaunum.
2. fundur stjórnar í BSÍ haldinn fimmtudaginn 13. desember, 2012 kl. 16.00 Allir voru mættir. Dagskrá 1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt 2. Reykjavík Bridgefestival - Icelandair; Í Bridgehátíðarnefnd eru nú Jafet, Sveinn, Gunnlaugur Karls, Kristján Blöndal og við bætast Guðmundur Snorrason og Rúnar Einarsson.
Allir velkomnir, Jólaöl og pipakökur á boðstólnum Einnig skemmtilegir aukarvinningar, Fyrsta slemman, mest niður fyrsti staðin doblaði stubbur, Nóg af RAUÐVÍNI í verðlaun nema menn óska fríkvöld í staðin.
Nú er verið að spila jólaeinmenning á Selfossi með þáttöku 18 spilara. Efstur eftir fyrra kvöldið er Anton Hartmannsson með nokkuð góða forystu. Mótinu líkur næstkomandi fimmtudag.
Í gærkvöldi var spilaður eins kvölds tvímenningur hjá Bridgefélagi Kópavogs. Spilað var á níu boroðum og sigruðu þeir Jón Steinar Ingólfsson og Guðlaugur Bessason með tæplega 61% skor.
Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 22 para tvímenning með 60,8%. Í 2. sæti voru Anna Jónsdóttir og Sigurrós Sigurðardóttir mðe 60%. Soffía Daníelsdóttir og Óli Björn Gunnarsson voru í 3ja sæti með 58,8% Öll úrslit og spil Miðvikudaginn 19. desember verður spilaður Alheimstvímenningur í Miðvikudagsklúbbnum á vegum Heimssambandsins í Bridge (WBF).
Þriðjudaginn 11. desember lauk 5 kvölda BUTLER keppni félagins. Sigurður og Torfi náðu loks vopnum sínum á lokakvöldinu og unnu kvöldið með 53 IMPum, eða 2,04 IMPum úr spili.
Eftir fyrra sjálfstæða kvöldið af tveimur þá eru Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson farnir að þefa af hangikjötinu með 63,0% skor. Hér má sjá heildarstöðuna og spilagjöfina.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar