Brynjólfur og Helgi/Sigurður Skagfjörð sigðruðu fyrsta tvímenning vetrarins með talsverðum yfirburður. Næsta mót félagsins er þriggja kvölda butlertvímenningur og hvetjum við sem flesta til að mæta.
Björn Jónsson og Þórður Jónsson héldu forystunni í butlertvímenningi Bridgefélags Kópavogs en annað kvöldið af þremur var spilað í kvöld. Þórir Sigursteinsson og Björn Halldórsson koma næstir en þeir hafa góða forystu á Baldur Bjartmarsson og Sigurjón Karlsson sem náðu besta skori kvöldsins.
Úrslitin má nálgast hér
Miklar sviftingar urðu á toppnum síðasta kvöldið og Greifameistarar urðu að lokum Pétur Gíslason og Björn Þorláksson.
Sveit Lögfræðistofu Íslands sigraði hraðsveitakeppni BR 2012. Sveit Garðs Apóteks kom fast á eftir og veitti harða keppmi að fyrsta sætinu. Í sveit Lögfræðistofu Íslands spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Sverrir Ármannsson og Steinar Jónsson.
Halldór Svanbergsson og Sigurður Steingrímsson unnu 3ja kvölda Gamla vínhús tvímenning BH 2012. Þeir leiddu meira og minna allt kvöldið og stóðu uppi sigurvegarar með +130,6 stig.
Íslandsmótið í einmenning verður haldið dagana 19 og 20.október n.k. og hefst spilamennska kl. 19:00 á föstudaginn og kl. 11:00 laugardaginn 20.október.
Íslandsmót kvenna í tvímenning lauk fyrir stundu með sigri Önnu Þóru Jónsdóttur og Ljósbrá Baldursdóttur, með 58,9 % skor Ljósbrá og Anna Þóra í 2. sæti voru Jóhanna Sigurjónsdóttir og Una Árnadóttir í 3.
Fyrirkomulagi Suðurgaðsmótsins var breytt vegna lélegrar þátttöku fyrsta kvöldið. Þannig að nú er þetta bara tveggja kvölda mót þar sem bæði kvöldin telja.
Heimasíða Íslandsmóts kvenna
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar