BR spilar á Hótel Loftleiðum á morgun í samstarfi við Bridgehátíðina. Spilaður verður eins kvölds alheimstvímenningur. Sömu spil um allan heim og hægt að nálgast útreikning á netinu eftir að spilamennsku lýkur.
Um helgina var háð svæðamót Norðurlands vestra í sveitakeppni. Keppt var um rétt til að spila í undanúrslitum Íslandsmóts í sveitakeppni en Norðurland vestra á rétt til að senda þrjár sveitir til þátttöku.
Annað kvöldið af þremur í butler tvímenningi Briddsfélags Selfoss var spilað síðastliðið fimmtudagskvöld. Þröstur Árnason og Sigurður Vilhjálmsson leiða mótið þegar eitt kvöld er eftir.
Fyrstu keppni ársins hjá Bridgefélagi Kóopavogs lauk í kvöld en það var þriggja kvölda Janúar-monrad tvímenningur. Hörð keppni var um efstu sæti eins og alltaf í Kóopavogi.
IEX Reykjavíkbridgefestival 2012
Hlynur Garðarsson og Hermann Friðriksson eru með forystu í A- riðli með 58,8% og Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason eru með forystu í B riðli með 61,5% Sjá nánar á heimasíðu BR
Þátt taka 9 sveitir og eftir tvö kvöld af sex leiðir sveit Víðis Jónssonar en mótið er jafnt.
2.fundur í stjórn BSÍ haldinn fimmtudaginn 12. janúar, 2012 kl. 16.00 Mættir voru Jafet Ólafsson, Árni Már , Garðar Garðarsson, Guðný Guðjónsdóttir, Ólöf Þorsteinsd, Jörundur Þórðarson, Helga Bergmann og Örvar Óskarsson.
Dagana 14.-15.janúar fór fram Svæðamót Norðurlands eysta í sveitakeppni þar sem 6 sveitir kepptu um 4 sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni 2012. Baráttan var hörð en sveit Stefáns Vilhjálmssonar leiddi lengst af og vann mótið en með honum léku Örlygur Már Örlygsson, Haukur Harðarson og Grétar Örlygsson.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar