Heimasíða IEX deildakeppninnar
Feðgarnir Þórður Jörundsson og Jörundur Þórðarson eru efstir eftir tvö kvöld af þremur í Butler-keppni Bridgefélags Kópavogs. Besta skori kvöldsins náðu hinsvegar forsetinn fyrrverandi Þorsteinn Berg og makker hans, Óskar Sigurðsson.
Þriggja kvölda Butlertvímenningi lauk með sigri Karls G. Karlssonar og Gunnlaugs Sævarssonar. Svala Pálsdóttir lék eitt kvöld með Gunnlaugi og eru þau þrjú vel að þessu komin.
Málararbutler Briddsfélags Selfoss hófst síðastliðinn fimmtudag með þátttöku 11 para. Þeir Guðmundur og Björn leiða eftir fyrsta kvöldið. Á hæla þeirra koma svo Þröstur og Ríkharður.
Hér fæst staðfest að þriðja spilakvöld félagsins leið hjá núna síðastliðinn þriðjudag. Ekki bárust nein stórtíðindi af þessu kvöldi önnur en þau að meistarar fyrri ára mættu loks og er talið ljóst að áskorun sú sem sett var fram fyrir nokkru hafi eitthvað spilað þar inní.
Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 26 para tvímenning miðvikudaginn 20. október. Baráttan um efsta sætið var jöfn og hörð og enduðu Hulda og Halldór 1 stigi fyrir ofan Esther Jakobsdóttur og Hjördísi Sigurjónsdóttur.
1. kvöld af 2 í Hraðsveitakeppni félagsins var spilað mánudaginn 18. október. 13 sveitir mættu til leiks og sveitin Nammi leiðir eftir 1. kvöldið með 58 impa í plús.
1.Stjórnarfundur nýrrar stjórnar, sem kosin var á ársþingi sambandsins 17.okt. s.l. undir stjórn Jafets S. Ólafssonar fmmtudaginn 28. október 2010 Mættir voru Jafet S.
62. ársþing Bridgesambands Íslands Haldið í Síðumúla 37 sunnudaginn 17. Október kl. 12:00 1. Þingsetning.
Jafet S. Ólafsson var kosinn forseti Bridgesambandsi Íslands á ársþingi sambandsins sem haldið var 17. október s.l. Aðrir í stjórn sambandsins eru : Guðný Guðjónsdóttir, Garðar Garðarsson, Jörundur Þórðarson, Sveinn R.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar