Í eins kvölds tvímenningi hjá bridgefélagi Suðurnesja/Muninn sigruðu þeir Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen með 67.4% skor. Næstir á eftir þeim voru þeir Jóhannes Sigurðsson og Óli Þór Kjartansson með 61.1% skor.
Björn Friðriksson og Unnar Atli Guðmundsson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum miðvikudaginn 29. september. Þeir unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Þrír frakkar hjá Úlfari.
Næstkomandi þriðjudag (5. október) hefjast að nýju samverustundir meðlima Briddsfélags Rangæinga. Staðurinn er Heimaland og stundin 19:30. Dagskrá vetrar hefur litið dagsins ljós og má sjá hér.
Þá er fyrsta móti vetrardagskrár Bridgefélags Akureyrar lokið sem var tveggja kvölda tvímenningur, Startmót Sjóvá. Þátt tóku 14 pör og tvísýnt var hvaða pör næðu verðlaunasæti því gengi margra para var ólíkt milli kvölda.
Oddur Hjaltason og Hrólfur Hjaltason leiða mótið með 80 stig. Á hæla þeirra koma Stefán Jóhannsson og Kjartan Ásmundsson með 62 stig.
Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason eru langefstir eftir 1. kvöld af 3 í A.Hansen tvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar. Þeir eru með +111 sem jafngildir 68% skor.
Vetrarstarf Briddsfélags Selfoss hóft síðastliðið föstudagskvöld, með aðalfundi félagasins. Að loknum fundarstörfum var spilaður stuttur tvímenningur.
Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson fóru á kostum fyrsta kvöldið af þremur í howell-tvímenningi hjá Bridgefélagi Kópavogs þegar þeir fengu 71,4% skor og verður þrautin þyngri fyrir næstu pör að ná þeim.
Þeir Jón H. Gíslason og Ævar Jónasson unnu annað kvöldið í röð með 57,1% skor. Fast á hæla þeirra komu Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen með 56,5% skor.
Þorvaldur Pálmason og Björn Árnason unnu 18 para tvímenning með 62,7%. Næstar voru Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sólveig Jakobsdóttir með 57,6%.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar