Halldór Þorvaldsson og Hulda Hjálmarsdóttir sigruðu á fyrsta spilakvöldi vetrarins hjá Bridgefélags Kópavogs í gærkvöldi. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Guðni Sigurðsson og makker unnu fyrsta spilakvöld félagins.
Garðar Valur Jónsson og Unnar Atli Guðmundsson unnu 20 para tvímenning á fyrsta spilakvöldi Miðvikudagsklúbbsins í vetur. Þeir voru 1 stigi fyrir ofan Ásmund Örnólfsson og Pál Ágúst Jónsson.
Bridgefélag Akureyrar er að hefja vetrarstarf sitt og kætast margir yfir því. Fyrsta mótið er tveggja kvölda tvímenningur: Startmót Sjóvá en það mun fara fram þriðjudagana 21. og 28.september.
Jón Ingþórsson og Hermann Friðriksson burstuðu fyrsta mót vetrarins með 61,7% skor.
Sveit H.F. VERÐBRÉFA leiðir sveit Skeljungs eftir 2 lotur af 4, með 118 impum gegn 58. Sveit H.F. VERÐBRÉFA er Bikarmeistari 2010. Sveit Skeljungs gaf leikinn eftir 2 lotur.
Aukafundur í stjórn BSÍhaldinn 9. sept. 2010. Mættir voru Ólöf, Guðný, Sveinn, Þorsteinn og Jörundur ásamt sérstökum gesti fundarins Hjálmtý Baldurssyni.
Undanúrslit Bikarsins hefst kl. 11:00 laugardaginn 11.sept. HF verðbréf og Skeljungur spila saman til úrslita sunnudaginn 12. september. Sveit Sigurðar gaf eftir 3 lotur á móti HF verðbréfum.
Miðvikudaginn 6. september var sett þátttökumet í sumar.40 pör mættu til leiks og var baráttan mikil um efstu sætin. Gunnlaugur Sævarsson og Garðar Garðarsson stóðu að lokum uppi sem sigurvegarar með +113,2 stig sem jafngildir 60,6%.
Vetrarstarf Bridgefélags Kópavogs hefst fimmtudaginn 16 september. Spilað er að á fimmtudögum kl. 19:00 í Gjábakka, Fannborg 8.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar