Ársþing BSÍ verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands sunnudaginn 18. október og hefst klukkan 12:00 að hádegi. Félög innan hreyfingarinnar hafa setu- og atkvæðisrétt á þinginu samkvæmt kvótaútreikningi skilagreina en áheyrnarfulltrúar eru velkomnir að sitja þingið.
Fyrsti leikur að byrja núna kl. 14 á BBO Ísland - Ítalía (Fantoni-Nunes, Lauria-Versace, sigurliðið í fyrra) Meistaradeild Evrópu (Champions Cup) hefst fimmtudaginn 15.október 2009 Landsmeistarar 10 efstu þjóða á síðasta Evrópumóti etja þar kappi.
Guðbrandur Sigurbergsson og Friðjófur Einarsson/Jón Alfreðssson sigruðu í A-Hansen tvímenning Bridgf. Hafnarfjarðar nokkuð örugglega. Hrafnhildur Skúladóttir og Alda Guðnadóttir fengu hæsta skor kvöldsins.
Fyrst kvöldið af þremur í suðurgarðstvímenningnum var spila síðastliðið fimmtudagskvöld, með þáttöku 12 para. Mjótt var á munum en efstir eftir kvöldið eru þeir Sigfinnur og Gísli.
Jöfnustu úrslit í íslandsmóti kvenna í tvímenning urðu núna. Sigurvegararar eru Bryndís Þorsteinsdóttir og María Haraldsdóttir með 801,9 stig með þeim á myndinni er yngismærin Embla Mey Thorarensen.
Tvenn pör urðu jöfn í 1-2 sæti á fyrsta spilakvöldi Rangæinga, sem fór fram síðasta þriðjudag 06.10. Það voru þeir Guðmundur Benediktsson-Óskar Pálsson og Örn Hauksson- Árni Þorgilsson með prósentuskor uppá 59,55%.
Erla Sigurjónsdóttir og Guðni Ingvarsson enduðu efst af 24 pörum 7. október í Miðvikudagsklúbbnum. Þau fengu 60,1% skor og fengu að launum gjafabréf á Food to go, Laugarásvegi 1. Ingólfur Páll Matthíasson og Ómar Olgeirsson enduðu í 2. sæti og Björn Friðriksson og Sverrir Þórisson enduðu í 3. sæti.
Þá er lokið fyrsta kvöldi af þremur í impatvímenningi Bridgefélags AkureyrarAf fimmtán pörum sem mættu er staða fimm efstu para er eftirfarandi: Impar 67,5 Jón B - Sveinn P 43,0 Gylfi - Helgi 24,0 Pétur Guðjóns - Stefán R 23,0 Pétur Gísla - Björn 22,5 Hjalti - Gissur J Frekari úrslit má sjá hér
Guðbrandur Sigurbergsson og Friðþjófur Einarsson halda enn forystunni eftir annað kvöld af þremur í A-Hansen tvímenningnum. María Haraldsdóttir og Sverrir Þórisson fengu hæsta kvöldskorið.
Sunnudaginn 4.október var haldinn eins kvölds monrad tvímenningur. Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson fóru á kostum og fengu 72,8% skor! Í öðru sæti voru Karólína Sveinsdóttir og Sigurjóna Björgvinsdóttir og í þriðja sæti urðu Haraldur Sverrisson og Þorleifur Þórarinsson Úrslit 4.október 2009 Næsta sunnudag, 11. október hefst 3ja kvölda tvímenningur, spilað í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14 og hefst spilamennska kl.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar