Bridgefélag Akureyrar hefur ákveðið að bjóða til ókeypis bridgeveislu í upphafi keppnistímabilsins. Þriðjudaginn 26.september hefst tveggja kvölda tvímenningsmót, Startmót Sjóvá, og til að byrja tímabilið að krafti verður ekkert keppnisgjald innheimt.
Minnt er á næstu keppni BR sem hefst næsta þriðjudag, 26.september, 3ja kvölda bötlertvímenningur. Þetta keppnisform hefur verið afar vinsælt undanfarin ár! Tveggja kvölda hausttvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur lauk í gær.
Þá fer starfsemi vetrarins að hefjast, en að venju hefst hún með aðalfundi. sem verður haldinn föstudaginn 22. september í Tryggvaskála kl. 20:00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, verðlaunaafhending fyrir síðastliðið keppnistímabil og að því loknu verður gripið í spil.
Magnús Sverrisson og Jörundur Þórðarson sigruðu í tvímenningnum! Lokastaðan hér 2. Karl G. Karlsson-Gunnlaugur Sævarsson, 1. Jörundur Þórðarson-Magnús Sverrisson 3. Jón Ágúst Guðmundsson-Kristján B.
Úrslit bikarkeppni BSÍ verða spiluð helgina 23.-24. september í húsnæði BSÍ að Síðumúla 37. Í undanúrslitum verða spiluð 48 spil og eigast þar við sveitir Garða og véla-Þriggja frakka annars vegar og hins vegar sveitir Orkuveitarinnar- Hermanns Friðrikssonar.
Mótaskráin fyrir tímabilið 2006-2007 er komin út og má finna hér til vinstri á síðunni og einnig hér. Breyting 14.sept 2006: Leiðréttar dagsetningar á Íslandmótinu í sveitakeppni, Kjördæmamót 12-13. maí og paratvímenningur 26-27. maí.
Eftirtaldar sveitir spila innbyrðis í fjórðungsúrslitum bikarkeppni Bridgesambands Íslands.
Stjórnarfundur Bridgesambands Íslands 9. fundur var haldinn mánudaginn 4. sept. klukkan 17:30 - 19.00 Mættir: Guðmundur Baldursson, Halldóra Magnúsdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Sigurðsson, Kristján Blöndal, Ómar Olgeirsson og Sveinn Eiríksson.
Nú fer að koma tími til að setja golfsettin inn í geymslu og setjast við spilaborðið! Bridgefélag Reykavíkur mun spila á þriðjudögum og föstudögum í vetur í Síðumúla 37 og hefst spilamennska alltaf kl.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar