Fréttir 2018
Esther og Anna Þóra unnu Hausttvímenning BK
Hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld með sigri mæðgnanna Estherar Jakobsdóttur og Önnu Þóru Jónsdóttur. Þær fengu 115 stig sem er samanlögð prósentuskor úr tveimur kvöldum.
Briddsfélag Selfoss
Vetrar starf félagsins hefst venju samkvæmt síðasta föstudag í september. Föstudaginn 28.september verður aðalfundur félagsins kl 20:00 í Selinu á íþróttavellinum á Selfossi.
Bridgefélag Hafnarfjarðar - Comeback hjá Danna Tjokkó
Guðmundur Snorrason og Daníel "Tjokkó" Sigurðsson urðu hlutskarpastir í bötlertvímenningi 24. september. Harpa Fold og Vignir Hauksson urðu í 2.sæti og Ómar Óskarsson og Valbjörn Höskuldsson í 3.sæti.
Pör geta bæst við í bötlertvímenning BR í kvöld
Haukur Ingason og Hermann Friðriksson eru efstir eftir fyrsta kvöld af þremur í bötlertvímenningi BR. Bestu 2 af 3 kvöldum gilda þannig að enn geta pör bæst við í kvöld, 25. september.
Hjálmar og Diddi efstir etir tvö kvöld í BK
Eftir tvö kvöld af þremur í Hausttvímenningi Bridgefélagi Kópavogs eru Hjalmar S Pálsson og Sigurður Steingrímsson efstir með 112,6 stig sem er samanlögð prósentuskor úr kvöldunum tveimur.
Fyrsta spilakvöld vetrarins hjá bridgefélagi nýliða 20. sept
Keyrum spilakvöld nýliða í gang fimmtudaginn 20. september. Alltaf spilað í Síðumúla 37 á fimmtudögum fram að 13. desember nema annað sé auglýst. Stefnt að 20 spilum í hvert sinn- c.
Miðvikudagsklúbburinn styrkir á Íslandsmót
Miðvikudagsklúbburinn ætlar að styrkja spilara á Íslandsmót kvenna í tvímenning og Íslandsmótið í einmenning. Hægt verður að sækja um keppnisgjöld fyrir 3 pör á Íslandsmóti kvenna í tvímenning og 8 keppnisgjöld á Íslandsmótið í einmenning.
BH: Fyrsta spilakvöld vetrarins
Fyrsta spilakvöld BH var einskvölds Butler tvímenningur. Úrslit og öll spil er að finna á hlekknum: http://www.bridge.is/meistarastig/bh/bfeh/2015_2016/2018-09-17.
3 kvölda bötlertvímenningur í BR að hefjast 18.sept - skráning
Þriggja kvölda bötlertvímenningur að hefjast í BR 18.
Þá er komið að því sem ALLIR hafa verið að bíða eftir :) Dagskrá BH
Þá er haustdagskrá BH kominn í loftið það er smá breyting frá fyrri tímum við ætlum að spila sem mest Butlertvímennig ein aðalkeppnirnar okkar eru enn þarna inni.
Minningarmót Skúla Sveinssonar
Minningarmót um Skúla Sveinsson hófst kl 11:00 í morgun á Borgarfirði Eystra. 19 pör spila barometer tvímenning og er reiknað með að mótið klárist fyrir 16:00 á morgun, sunnudaginn 26. ágúst.
Vetrardagskrá Bridgefélags Kópavogs komin á heimasíðuna
Vetrardagskrá Bridgefélags Kópavogs er komin á HEIMASÍÐUNA Byrjað 13. September kl. 19:00 Spilað í Gjábakka, Fannborg 8, á bak við Landsbankann við Hamraborg.
Minningarmót á Borgarfirði-Eystri
Kæru briddsarar nær og fjær.Helgina 25.-26. ágúst ætla Borgfirðingar að heiðra minningu fallins félaga sem kvaddi okkur alltof snemma í vetur. Minningamót Skúla Sveinssonar verður haldið í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystri.
Ervópumótinu lokið
Lokapistill frá Antoni Evrópumótinu lauk fyrir stundu með sigri Norðmanna í opnum flokki, Pólverja í kvenna flokki og Frakkar sigruðu Seniora flokkinn Okkar spilarar náðu ekki að komast í efstu 8 sætin sem gáfu rétt til að spila á Heimsmeistaramótinu á næsta ári við óskum sigurvegurum innilega til hamingju og þökkum okkar spilurum fyrir sitt innlegg í mótinu Sjá allt um EM hér
Síðasti spiladagurinn á EM
Pistill 12 frá Tona Opinn flokkur kvenna flokkur Seniorar 3,91 Lettland 12:00 Yfirseta 12,03 Portugal 10,91 Belgía 1,45 Noregur 15,00 Bulgaría 2,69 Grikkland 5,00 Danmörk 6,03 Noregur Lifandi úrslit í öllum leikjum á EM BBO
Föstudagsbridge 8. júní 2018
Heimasíða Föstudagsbridge
Kjördæmameistarar 2018
Lið Reykjavikur unnu Kjördæmamótið 2018 með 496,38 stig, fast á hæla þeirra kom lið Norðurlands eystra með 493,52 stig og í þvi því þriðja voru gestgjafarnir á Norðurlandi vestra með 383,12 stig Sjá nánar um Kjördæmamótið hér vinstra megin
Júlíus Snorrason er Bronsstigameistari BK 2017-2018
Endanleg bronsstigastaða Bridgefélags Kópavogs veturinn 2017-2018 er komin á HEIMASÍÐUNA Eins og áður hafði komið fram á Fb-spjallinu er Julius Snorrason bronsstigameistari 2017-2018 með 420 stig.
Matthías Þorvaldsson er bronsstigameistari BR 2017-2018
Bronsstigameistari Bridgefélags Reykjavíkur veturinn 2017-2018 er Matthias Gísli Þorvaldsson með 304 stig, 42 stigum meira en hans fasti maker Aðalsteinn Jorgensen.
Skúli Skúlason er einmenningsmeistari BR
Einmenningur var spilaður á fimm borðum í kvöld. Skúli Skúlason bar sigurúr býtum með 60,2% skor. HEIMASÍÐAN Bridgefélag Reykjavíkur þakkar öllum þeim er mættu til spilamennsku í vetur.