Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 28. febrúar 2018

Rangæingar -- Ölkvöldið hið fyrsta

Það var létt yfir Rangæskum spilurum sl. þriðjudag, enda ölkvöld þar sem veitt er blautleg verðlaun fyrir alla flokka.  13 pör mættu til leiks og léku 28 spila Barómeter.

þriðjudagur, 27. febrúar 2018

Kristján Snorra og Ólafur Sigmars efstir í BR

Annað kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Kristján Snorrason og Ólafur Sigmarsson töpuðu efsta sætinu um tíma en náðu því aftur í síðustu setunni.

mánudagur, 26. febrúar 2018

Vestri vann undankeppnina en Bingi og feðgarnir eru Reykjanesmeistarar

Reykjanesmótið í sveitakeppni var haldið í Hafnarfirði um helgina. Eftir harða keppni stóð sveit Vestra uppi sem sigurvegari í undankeppni Íslandsmótsins en Bingi og feðgarnir eru hinsvegar Reykjanesmeistarar þar sem þeir urðu efsta sveitin sem er skipuð meirihluta spilara í félögum á svæðinu.

föstudagur, 23. febrúar 2018

Briddsfélag Selfoss

Þegar þremur umferðum af fimm er lokið í aðalsveitakeppninn, hafa menn Billa tekið forystuna, þó er naumt á milli sveita og úrslitin hvergi nærri ráðin.

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Björk og Jón eru Kópavogsmeistarar í tvímenningi

Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld. Eftir æsispennandi keppni stóðu Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson uppi sem sigurvegarar með aðeins 0,9 stigum meira en þeir Jón Þorvarðarson og Þórir Sigursteinsson.

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Rangæingar -- Blásarasveitin

Sl. þriðjudag lauk sveitakeppni okkar Rangæinga.  Saxófónbræður luku leik með sóma og sann, þó formaðurinn skipti sér út úr byrjunarliðinu og stillti upp litlum þverflautuleikara frá Selfossi sem djúpum miðjumanni í síðasta leik.

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Reykjanesmót í sveitakeppni

Reykjanesmót í sveitakeppni verður haldið helgina 24-25 febrúar að Flatahrauni 3 Hafnarfirði Byrjað verður að spila kl.10 á laugardagsmorgun síðan ræðst dagskrá eftir fjölda sveita Reykjanes á rétt á 4 sveitum inn á íslandsmót Sama gamla góða verðið 24.

mánudagur, 19. febrúar 2018

Jafnt á toppnum í Hafnarfirði

Guðbrandur og Friðþjófur og Indriði og Pálmi skoruðu mest í Hafnarfirði í kvöld, reyndar jafnmikið upp á punkt og prik en þeir fyrrnefndu unnu innbyrðis viðureign.

miðvikudagur, 31. janúar 2018

Rangæingar -- Kerfinu breytt til bóta

Nú höfum við Rangæingar lokið við 4 umferðir af 7 í sveitakeppni félagsins og keppnin því rúmlega hálfnuð. Toppsveitirnar áttust við í gærkvöldi.

mánudagur, 29. janúar 2018

AÐALTVÍMENNINGUR BK BYRJAR 01. FEBRÚAR

Aðaltvímenningur Bridgefélags Kópavogs hefst fimmtudaginn 01. febrúar kl. 19:00 Berst væri að sem allra flestir myndu skrá sig fyrirfram en þó verður opið fyrir skráningu til kl.

miðvikudagur, 24. janúar 2018

Rangæingar -- Saxinu beitt

Sl. þriðjudag var leikin 3ja umferð í sveitakeppninni. Krúttmolarnir í Bangsímon tóku loks til verka og fyrir valinu varð Morgan Kane.  Morgan Kane er sjálfsagt farinn að eldast og orðinn hægur með byssuna, alla vega kom hann engum skotum á Bangsímon sem fór af hólmi með rúm 18 stig en Kane ran af hólmi með tæp tvö stig á milli lappanna.

föstudagur, 19. janúar 2018

Briddsfélag Selfoss

Janúarbutlerinn heldur áfram og eftir tvö kvöld af þremur eru Kristján og Þröstur efstir. Ekki verður spilað næstkomandi fimmtudag vegna briddshátíðar og verður því næsta spilakvöld fimmtudaginn 1. febrúar.

fimmtudagur, 18. janúar 2018

Bernódus og Ingvaldur unnu Monradtvímenning BK

Þriðja og síðasta kvöldið í Monradtvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson náðu besta skori kvöldsins með 61,2% en Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson sigruðu samanlagt með 175,1 stig sem er samanlögð prósentuskor úr kvöldunum þremur.

miðvikudagur, 17. janúar 2018

Miðvikudagsklúbburinn

34 pör mættu til leiks hjá Miðvikudagsklúbbnum og stóðu Guðmundur Baldursson og Steinberg Ríkarðsson uppi sem sigurvegarar með rétt rúmlega 64%. Öll úrslit og spil: http://www.

miðvikudagur, 17. janúar 2018

Rangæingar -- Litli Jón belgist út

Sl. þriðjudag lékum við Rangæingar 2. umferð í sveitakeppninni.   Litli Jón og hans menn tóku Bangsímon drengina til bæna. Af úrslitum leiksins er ljóst að Bangsímonarnir kunnu engar bænir fyrir og lærðu fáar.

þriðjudagur, 16. janúar 2018

JE. Skjanni og Hórel Hamar með afgerandi forystu á næstu sveitir

Annað kvöldið af fjórum í Patton sveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Sveit JE Skjanna er með eins stigs forystu á sveit Hótels Hamars en svo eru yfir 30 stig í næstu sveitir þar á eftir.