Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir

mánudagur, 3. júlí 2006

Heimsmeistaramot yngri spilara i tvimenning 2006

Thad var erfidur rodurinn hja Islensku porunum og voru Ari Mar og Ottar eina parid sem endadi yfir 50% med thvi ad skora vel yfir 60% i sidustu lotu. Hrefna og Elva fengu birtar myndir af ser i motsbladinu og umfjollun thegar thaer spiludu gegn sigurvegurunum.

föstudagur, 30. júní 2006

Stadan eftir 1. lotu i heimsmeistaramoti yngri spilara i tvimenning 2006

1. lotan reyndist ekki hlidholl Islendingum, en stada paranna er eftirfarandi> 25 ara og yngri - 142 por 91.  Ari Mar Arason - Ottar Ingi Oddsson     48.07%103. Inda Hronn Bjornsdottir - Grimur Kristinsson     45.03%108. Johann Sigurdarson - Gudjon Hauksson     44.46%135. Elva Davidsdottir - Hrefna Jonsdottir     38.17%136. Olafur Hannesson - Ellert Smari Kristbergsson     37.16% 20 ara og yngri - 68 por 56.  Gabriel Gislason - Adam Finnsson     40.57%   Tvaer lotur verda spiladar a morgun og byrjar fyrri kl.

þriðjudagur, 27. júní 2006

SumarBRIDGE 2006: Svala og Stefán unnu 20 para tvímenning!!

Svala Pálsdóttir og Stefán Garðarsson unnu 20 para tvímenning í Sumarbridge 2006.

mánudagur, 19. júní 2006

HM í Verona

Tvö pör af þremur úr íslenska landsliðinu í opna flokknum tóku þátt í HM í Verona á Ítalíu: Matthías G. Þorvaldsson, Magnús E. Magnússon, Bjarni H. Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson.

mánudagur, 19. júní 2006

Stórmót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni

Bridgemót NEMEL 28 manns mættu til leiks á Nordica á 16.júnímót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni. Skemmtu spilarar sér konunglega og menn voru sammála um það að hafa þetta árlegan viðburð, 16.júní.

þriðjudagur, 13. júní 2006

AÐALFUNDUR BRIDGEFÉLAGS REYKJAVÍKUR

Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 14. júní nk. klukkan 17:30 í húsnæði BSÍ að Síðumúla 37. 3. hæð. Á dagskrá eru lagabreytingar og venjuleg aðalfundarstörf.

þriðjudagur, 13. júní 2006

Sumarbridge: Gulli Sveins og Maggi unnu Gabríel og Villa JR með einu stigi!!

Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson unnu Gabríel Gíslason og Vilhjálm Sigurðsson JR með einu stigi. Þetta var flott skor hjá báðum pörum, 62,5% og 62,3%.

laugardagur, 10. júní 2006

Sumarbridge: Gabríel Gíslason og Gísli Steingrímsson með 60.4% skor!

Gabríel Gíslason og Gísli Steingrímsson unnu 14 para tvímenning í Sumarbridge með rétt rúmlega 60% skor. Það er ekki á hverjum degi sem 13 ára spilarar vinna tvímenningsmót og auk þess rétt missti hann af 1. sæti í Miðnætursveitakeppninni.

fimmtudagur, 8. júní 2006

Bikarkeppni BSÍ

Alls skráðu 35 sveitir sig í Bikarkeppni BSÍ og dregið var í fyrstu og aðra umferð í lok Kjördæmamótsins á Akureyri. Sjá allt um bikarinn hér Í fyrstu umferð eru aðeins 3 leikir, til að ná tölunni niður í 32 sveitir.

fimmtudagur, 8. júní 2006

Sumarbridge: Jóhann Stefánsson og Birkir Jónsson unnu 28 para tvímenning!

Glæsileg þátttaka var í Sumarbridge miðvikudaginn 7. júní. 28 pör mættu til leiks og hlutskarpastir voru Jóhann Stefánsson og Birkir Jónsson með +90 sem jafngildir 62.4% skori.

fimmtudagur, 1. júní 2006

Sumarbridge: Snorri og Ingólfur leiddu allt kvöldið og unnu!!

Snorri Sturluson og Ingólfur Hlynsson leiddu allt kvöldið í Sumarbridge og stóðu uppi sem sigurvegarar með +37 sem jafngildir 59.4% skori. Næstar voru Inga Lára Guðmundsdóttir og Unnur Sveinsdóttir.

miðvikudagur, 31. maí 2006

Sumar loksins komið á Akureyri

Sumar loksins komið Hér á Akureyri er komið sumar og snjór óðum að hverfa úr görðum. En sumar þýðir auðvitað líka að B.A. spilar á þriðjudögum kl 19:30 og 23.maí urðu efstir: 1. Reynir Helgason - Björn Þorláksson +8 2. Gissur Gissurarson - Viggó Reisenhus +5 3. Stefán Vilhjálmsson - Guðmundur V.

þriðjudagur, 23. maí 2006

Ómar Olgeirsson og Rúnar Gunnarsson með RISAskor í Sumarbridge!!

Rúnar Gunnarsson og Ómar Olgeirsson byrjuðu Sumarbridge 2006 með glæsilegu skori, 69,6%. Þetta er með hærri skorum sem hefur náðast þegar spilaður hefur verið Monrad Barómeter.

mánudagur, 22. maí 2006

Sumarbridge

Sumarbridge mun ver�a �risvar � viku � sumar, m�nudags-, mi�vikudags- og f�studagskv�ld og hefst alltaf klukkan 19:00. Spilaform ver�ur �vallt monrad bar�meter me� forgefnum spilum og �forma� a� nota oftast Bridgemate t�lvurnar vi� �treikning.

mánudagur, 22. maí 2006

Glæstur sigur Reykvíkinga í Kjördæmamótinu

Reykvíkingar unnu glæstan sigur í Kjördæmamótinu sem fram fór á Akureyri um síðustu helgi, höfðu 25 stiga forystu á N-Eystra þegar up var staðið. Í ár voru Færyeingar með í fyrsta sinn, en þeir hafa sýnt áhuga á að vera þátttakendur í þessari skemmtilegu keppni á næstu árum.

föstudagur, 19. maí 2006

Bikarkeppni Norðurlanda

Bikarmeistarar síðasta árs taka nú um helgina þátt í móti í Rottneros. Etja þar kappi bikarmeistarar allra Norðurlanda. Fyrir Íslands hönd spila Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson.

föstudagur, 19. maí 2006

Skráning í bikarkeppni BSÍ hafin

Skráning er hafin í bikarkeppni Bridgesambands Íslands og er hægt að skrá sig hér. Dregið verður í fyrstu umferðina á kjördæmamótinu á Akureyri helgina 20.-21. maí.

miðvikudagur, 17. maí 2006

Bridgefélag Reykjavíkur - Einmenningur og bronsstigauppgjör

Einmenningsmót BR fyrir bronsstigahæstu spilara BR í vetur fór fram þriðjudaginn 16.maí. Veglegt gjafabréf frá Heimsferðum fyrir sigurvegarann!! Einnig voru veitt verðlaun fyrir stigahæsta spilara vetrarins, efstu konuna og yngri spilarann.

þriðjudagur, 16. maí 2006

Jón Stefánsson og Magnús Sverrisson unnu lokakvöld Mánudagsklúbbsins

Jón Stefánsson og Mangús Sverrisson skutust í efsta sætið í lokaumferðinni og unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Lauga-Ás. Ísak Örn Sigurðsson og Halldóra Magnúsdóttir voru í 2. og fengu þau gjafakörfu frá SS sem og Rúnar Gunnarsson og Hermann Friðriksson sem voru dregnir út af handahófi.

mánudagur, 15. maí 2006

15.maí 2006

Stjórnarfundur Bridgesambands Íslands 7. fundur var haldinn mánudaginn 15. maí klukkan 17:30 – 19.15 Mættir: Frímann Stefánsson, Guðmundur Baldursson, Halldóra Magnúsdóttir, Helgi Bogason, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Sigurðsson, Kristján Blöndal, Ómar Olgeirsson, Páll Þórsson og Sveinn Eiríksson.