Fréttir
LOKASTAÐA EFSTU PARA Í PARATVÍMENNINGNUM
Að loknum 29 í paratvímenningnum enduðu Hjördís Sigurjónsdóttir og Kristján Blöndal í efsta sæti með 58,7% skor en staða efstu para varð annars þannig.
Rúnar og Hermann skutust á toppinn í síðustu umferð!
Rúnar Gunnarsson og Hermann Friðriksson toppuðu á réttum tíma í Mánudagsklúbbnum og unnu sér inn gjafakörfu frá SS. Þeir enduðu 2 stigum fyrir ofan Óttar og Ara með +26 sem jafngildir 59.3% skori.
Íslandsmót í paratvímenningi
Hið vinsæla Íslandsmót í paratvímenningi verður haldið helgina 13.-14. maí í húsnæði Bridgesambands Íslands að Síðumúla 37. Keppnisstjóri verður Sigurbjörn Haraldsson.
Söfnun fyrir Arnar Geir Hinriksson
Stofnaður hefur verið reikningur til söfnunar fyrir Arnar Geir Hinriksson, bridgespilara frá Ísafirði, sem varð fyrir því óláni að hryggbrotna á skíðum um páskahelgina og lamast af þeim sökum.
Íslandsmótið í tvímenningi 2006
Íslandsmótið í tvímenningi fór fram um helgina og lauk í dag.48 pör spiluðu á laugardag og sunnudag og 24 efstu spiluðu svo til úrslita á sunnudag og mánudag.
Kjördæmamót 2006
Kjördæmamótið 2006 verður haldið á Akureyri 20.-21.maí næstkomandi. Spilað verður í nýjum sal Brekkuskóla, Laugargötu (við hliðina á Sundlaug Akureyrar).
Kjördæmamót 2006
Kjördæmamótið 2006 verður haldið á Akureyri 20.-21.maí næstkomandi. Spilað verður í nýjum sal Brekkuskóla, Laugargötu (við hliðina á Sundlaug Akureyrar).
Vetrarstarfi BFH lýkur!
Þóranna og Ragna efstar í Mánudagsklúbbnum!
Þóranna Pálsdóttir og Ragna Briem voru funheitar eftir Landsliðkeppni kvenna og unnu spilakvöld Mánudagsklúbbsins 24. apríl með glæsilegu skori, 64,1%.
Landsliðskeppni kvenna
Landsliðskeppni kvenna fór fram nú um helgina. Tvær efstu sveitirnar spilar síðar úrslitaleik og sveitin sem sigrar verður kvennalandslið Íslands á Evrópumótinu í Póllandi í ágúst.
Úrslitakeppni Íslandsmóts í tvímenningi
Úrslitakeppni Íslandsmótsins í tvímenningi fer fram dagana 29. apríl - 1. maí. Keppnisstjóri verður hinn röggsami Björgvin Már Sigurðsson. Í upphafi keppa 56 pör í riðlakeppni.
Halldórsmót B.A. spennandi
Halldórsmót B.A. spennandi Síðastliðinn þriðjudag var spilað annað kvöldið af þremur í Board-a-Match sveitakeppni Bridgefélags Akureyrar. Baráttan er hörð um 1.-3. sæti og verður gaman að sjá hvað gerist síðasta kvöldið: 1. Sveit Frímann Stefánssonar 133 Meðspilarar: Björn Þorláksson, Hjalti Bergmann, Sigurður Erlingsson og Jónas Róbertsson 2. Sveit Gylfa Pálssonar 131 3. Sveit Unu Sveinsdóttur 119 4. Sveit Stefáns Vilhjálmssonar 114 Sunnudaginn 23.apríl verður spilað sunnudagsbridge í Hamri kl.
Aðaltvímenningur BR að byrja í kvöld !!
Aðaltvímenningur BR hefst í kvöld kl. 19:00 - 4 kvölda mót Skráning á keppnisstjori@bridgefelag.is Veitt verða peningaverðlaun í þessu móti! Minnt er á einmenningsmót þriðjudaginn 16.maí fyrir 24 bronsstigahæstu spilara BR í vetur.
Eykt öruggur sigurvegari á Íslandsmóti
Sveit Eyktar vann 25-3 sigur á Skeljungssveitinni í síðasta leik úrslitakeppninnar og náð þannig yfirburðasigri á Íslandsmótinu í sveitakeppni 2006. Þegar upp var staðið, munaði 35 stigum á fyrsta og öðru sætinu sem kom í hlut Ferðaskrifstofu Vesturlands, Íslandsmeistara síðasta árs.
Íslandsmótið í sveitakeppni 2006 - ÚRSLIT
Úrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni fara fram á Hótel Loftleiðum í dymbilvikunni, dagana 12-15.apríl. Fyrsta umferð hefst miðvikudaginn 12.apríl kl.
Halldórsmót B.A.
Halldórsmót hafið Síðasta stóra mót vetrarins er hafið hjá Bridgefélagi Akureyrar en það er Halldórsmótið í sveitakeppni. Fyrirkomulagið er Board-a-Match þar sem impar eru þó líka taldir til tekna að hluta.
Helgi Bogason og Vignir Hauksson með 65,3% skor!
16 pör spiluðu Monrad Barómeter í Mánudagsklúbbnum. Helgi Bogason og Vignir Hauksson unnu sér inn gjafakörfu frá SS með glæsilegu skori, 65,3%. Jón Stefánsson og Magnús Sverrisson voru í 2. sæti með 56,4% og fengu gjafakort í kaffisölu BSÍ.
GÓUMÓTIÐ
Samhliða úrslitunum verður GÓUMÓTIÐ haldið á Hótel Loftleiðum: 1.lota kl. 13:00-16:30 skírdag 2.lota kl. 11:00-14:30 föstudaginn langa 3.lota kl. 15:00-19:00 föstudaginn langa Spilagjald er 1000 kr.
Alfreðsmót B.A. í impatvímenningi
Alfreðsmóti B.A. er lokið Mótið er impatvímenningur þar sem fólk á einnig sína "sveitarfélaga". Síðasta kvöldið var lítið heildarskor þrátt fyrir sveifluspil: 1. Pétur Guðjónsson - Stefán Ragnarsson +14 2. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +13 3. Gissur Gissurarson - Gissur Jónasson +5 Heildarstaðan breyttist því lítið: 1. Frímann Stefánsson - Björn Þorláksson +89 2. Pétur Guðjónsson - Stefán Ragnarsson +69 3. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +59 4. Grétar Örlygsson - Haukur Harðarsson - Sigurður Erlingsson +31 5. Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir +30 Efsta sveitin var skipuð Birni og Frímanni ásamt Kára Gíslasyni og Sigfúsi Hreiðarssyni.
Íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni 2006