Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 18. september 2018

Miðvikudagsklúbburinn styrkir á Íslandsmót

Miðvikudagsklúbburinn ætlar að styrkja spilara á Íslandsmót kvenna í tvímenning og Íslandsmótið í einmenning. Hægt verður að sækja um keppnisgjöld fyrir 3 pör á Íslandsmóti kvenna í tvímenning og 8 keppnisgjöld á Íslandsmótið í einmenning.

mánudagur, 17. september 2018

BH: Fyrsta spilakvöld vetrarins

Fyrsta spilakvöld BH var einskvölds Butler tvímenningur. Úrslit og öll spil er að finna á hlekknum:  http://www.bridge.is/meistarastig/bh/bfeh/2015_2016/2018-09-17.

mánudagur, 17. september 2018

3 kvölda bötlertvímenningur í BR að hefjast 18.sept - skráning

Þriggja kvölda bötlertvímenningur að hefjast í BR 18.

sunnudagur, 26. ágúst 2018

Þá er komið að því sem ALLIR hafa verið að bíða eftir :) Dagskrá BH

Þá er haustdagskrá BH kominn í loftið það er smá breyting frá fyrri tímum við ætlum að spila sem mest Butlertvímennig ein aðalkeppnirnar okkar eru enn þarna inni.

laugardagur, 25. ágúst 2018

Minningarmót Skúla Sveinssonar

Minningarmót um Skúla Sveinsson hófst kl 11:00 í morgun á Borgarfirði Eystra.  19 pör spila barometer tvímenning og er reiknað með að mótið klárist fyrir 16:00 á morgun, sunnudaginn 26. ágúst.

þriðjudagur, 21. ágúst 2018

Vetrardagskrá Bridgefélags Kópavogs komin á heimasíðuna

Vetrardagskrá Bridgefélags Kópavogs er komin á HEIMASÍÐUNA Byrjað 13. September kl. 19:00 Spilað í Gjábakka, Fannborg 8, á bak við Landsbankann við Hamraborg.

mánudagur, 9. júlí 2018

Minningarmót á Borgarfirði-Eystri

Kæru briddsarar nær og fjær.Helgina 25.-26. ágúst ætla Borgfirðingar að heiðra minningu fallins félaga sem kvaddi okkur alltof snemma í vetur. Minningamót Skúla Sveinssonar verður haldið í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystri.

laugardagur, 16. júní 2018

Ervópumótinu lokið

Lokapistill frá Antoni Evrópumótinu lauk fyrir stundu með sigri Norðmanna í opnum flokki,  Pólverja í kvenna flokki og Frakkar sigruðu Seniora flokkinn Okkar spilarar  náðu ekki að komast í efstu 8 sætin sem gáfu rétt til að spila á Heimsmeistaramótinu á næsta ári við óskum sigurvegurum innilega til hamingju og þökkum okkar spilurum fyrir sitt innlegg í mótinu Sjá allt um EM hér

föstudagur, 15. júní 2018

Síðasti spiladagurinn á EM

Pistill 12 frá Tona    Opinn flokkur   kvenna flokkur   Seniorar   3,91         Lettland  12:00         Yfirseta 12,03     Portugal 10,91          Belgía    1,45         Noregur 15,00     Bulgaría   2,69         Grikkland    5,00          Danmörk   6,03     Noregur Lifandi úrslit í öllum leikjum á EM BBO

föstudagur, 8. júní 2018

Föstudagsbridge 8. júní 2018

Heimasíða Föstudagsbridge

sunnudagur, 13. maí 2018

Kjördæmameistarar 2018

Lið Reykjavikur unnu Kjördæmamótið 2018 með 496,38 stig, fast á hæla þeirra kom lið Norðurlands eystra með 493,52 stig  og í þvi því þriðja voru gestgjafarnir á Norðurlandi vestra með 383,12 stig Sjá nánar um Kjördæmamótið hér vinstra megin    

föstudagur, 11. maí 2018

Júlíus Snorrason er Bronsstigameistari BK 2017-2018

Endanleg bronsstigastaða Bridgefélags Kópavogs veturinn 2017-2018 er komin á HEIMASÍÐUNA Eins og áður hafði komið fram á Fb-spjallinu er Julius Snorrason bronsstigameistari 2017-2018 með 420 stig.

föstudagur, 11. maí 2018

Matthías Þorvaldsson er bronsstigameistari BR 2017-2018

Bronsstigameistari Bridgefélags Reykjavíkur veturinn 2017-2018 er Matthias Gísli Þorvaldsson með 304 stig, 42 stigum meira en hans fasti maker Aðalsteinn Jorgensen.

þriðjudagur, 8. maí 2018

Skúli Skúlason er einmenningsmeistari BR

Einmenningur var spilaður á fimm borðum í kvöld. Skúli Skúlason bar sigurúr býtum með 60,2% skor. HEIMASÍÐAN Bridgefélag Reykjavíkur þakkar öllum þeim er mættu til spilamennsku í vetur.

laugardagur, 5. maí 2018

Árshátíð kvenna 5. maí 2018

44 pör taka þátt í árshátíð kvenna á Fosshóteli.

fimmtudagur, 3. maí 2018

Birna og Aðalsteinn unnu Vortvímenning BK

Starfsemi Bridgefélags Kópavogs lauk þetta vorið með Vortvímenningi þar sem Birna Stefnisdóttir og Aðalsteinn Steinþórsson báru sigur bítum með 115,3 stig sem er samanlögð prósentuskor tveggja kvölda.

fimmtudagur, 3. maí 2018

Öll bronsstig vetrarins hjá BR komin á heimasíðuna

Nú eru öll bronsstig vetrarins hjá Bridgefélagi Reykjavíkur komin á HEIMASÍÐUNA.

miðvikudagur, 2. maí 2018

Hótel Hamar vann Aðalsveitakeppni BR

Fimmta og síðasta kvöldið í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í gærkvöldi. Sveit Hótels Hamars hélt út og sigraði með að lokum með 12 stiga mun eftir tvö jafntefli og 17,68 sigur í síðustu umferðinni.

laugardagur, 28. apríl 2018

Vorhátíð Krummaklúbbsins

Krummaklúbburinn tekur á móti stjörnuliði Dennu á vorhátíð félagsins.   Báðir hópar eru með 10 sveitir og verða spilaðar 4 eða 5 umferðir eftir því sem tíminn leyfir.

fimmtudagur, 26. apríl 2018

Loftur og Kristín efst í Kópavogi

Fyrra kvöldið af tveimur í Vortvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Kristín Þórarinsdóttir og Loftur Pétursson urðu efst með 62,2% og standa vel að vígi fyrir lokakvöld vetrarins sem verður spilað fimmtudaginn 03. maí.