Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 19. apríl 2018

Bernódus og Ingvaldur unnu Impakeppni Bakarameistarans

Þriðja og síðasta kvöldið í Impakeppni Bakarameistarans var spilað í kvöld. Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson náðu besta skori kvöldsins með 81 impa í plus og enduðu sem sigurvegarar samanlagt með 83 impa í plus.

fimmtudagur, 19. apríl 2018

Rangæingar -- Lokahóf

Síðasta vetrardag komum við Rangæingar saman á varaheimavelli okkar, Gunnarshólma í A-Landeyjum, og héldum árlegt lokahóf okkar.    Byrjuðum á því að veita verðlaun fyrir veturinn og lékum að því loknu 28 spila monrad barometer með þátttöku 14 para.

mánudagur, 16. apríl 2018

Briddsfélag Selfoss

Brynjólfur og Helgi sigruðu þriggjakvölda tvímenning sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Var forysta þeirra örugg. Næstir á eftir þeim vour Guðmundur Höskuldur.

sunnudagur, 15. apríl 2018

Jón Halldór Guðmundsson og Einar Hólm Guðmundsson unnu Halamótið

Hrossakjötsmótinu á Hala í Suðursveit lauk nú fyrir stundu með sigri Seyðfirðinganna Jóns Halldórs Guðmundssonar og Einars Hólm Guðmundssonar.

fimmtudagur, 12. apríl 2018

Ásmundur og Gunnlaugur efstir í Kópavogi

Eftir tvö kvöld af þremur í Impakeppni Bakarameistarans eru Ásmundur Örnólfsson og Gunnlaugur Karlsson efstir af þeim pörum sem hafa mætt bæði kvöldin.

miðvikudagur, 11. apríl 2018

Rangæingar -- Úrslitin ráðin

Nú höfum við Rangæingar lokið formlegri vetrardagskrá okkar.  Henni lauk sl. þriðjudag þegar við lukum við 5 kvölda Samverkstvímenning.    Þá eigum við einungis lokakvöldið eftir, sem við höldum nk.

fimmtudagur, 29. mars 2018

Akranestvímenningur

Akranestvímenningur stendur nú sem hæst. Staða.

miðvikudagur, 28. mars 2018

Rangæingar -- Lengi lifir í gömlum glæðum

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman að vanda á heimavelli okkar að Heimalandi.   Lékum páskabarómeter með þátttöku 14 para.   Veitt voru verðlaun, páskaegg í anda aðsteðjandi hátíðar, fyrir fyrstu 4 sætin, heiðurssætið og Tottenham sætið.

miðvikudagur, 28. mars 2018

Sveit Hótels Hamars enn efst í BR

Annað kvöldið af fimm í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Sveit Hótels hamars hélt sínu strike og er með 8 stiga forystu á sveit J.

sunnudagur, 25. mars 2018

Árni og Oddur unnu Páskatvímenning Breiðfirðinga

Páskatvímenningur Breiðfirðingafélagsins var spilaður í kvöld Árni Hannesson og Oddur Hannesson stóðu uppi sem sigurvegarar eftir nokkuð harða baráttu.

sunnudagur, 25. mars 2018

Briddsfélag Selfoss

Íslandsbankatvímenningurinn hélt áfram síðastliðið fimmtudagskvöld, fyrir loka kvöldið eru þeir Brynjólfur og Helgi efstir. Ekki er spilað á skýrdag.

laugardagur, 24. mars 2018

MS Selfossi vann HSK-mótið 2018

Sveit MS Selfossi vann HSK-mótið í sveitakeppni 2018 HEIMASÍÐAN

fimmtudagur, 22. mars 2018

Aðrir Vopnabræður unnu Hraðsveitakeppni BK

Fjórða og síðasta kvöldið í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Eftir harða keppni og sviftingar stóðu Aðrir Vopnabræður uppi sem sigurvegarar með 22 stigum meira en Bingi og feðgarnir.

miðvikudagur, 21. mars 2018

Rangæingar -- Það munar ekkert um einn ás

Sl. þriðjudag lékum við Rangæingar 3ju umferð í Samverkstvímenningnum.  Til leiks mættu 13 pör. "Best að spyrja um ása" hugsaði Tottenhamtröllið og meldaði 4 lauf við sterkri opnun formannsins á 2 hjörtum í spili 26.   Ég á nokkra svaraði formaðurinn og tröllið taldi á fingrunum.

miðvikudagur, 28. febrúar 2018

Rangæingar -- Ölkvöldið hið fyrsta

Það var létt yfir Rangæskum spilurum sl. þriðjudag, enda ölkvöld þar sem veitt er blautleg verðlaun fyrir alla flokka.  13 pör mættu til leiks og léku 28 spila Barómeter.

þriðjudagur, 27. febrúar 2018

Kristján Snorra og Ólafur Sigmars efstir í BR

Annað kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Kristján Snorrason og Ólafur Sigmarsson töpuðu efsta sætinu um tíma en náðu því aftur í síðustu setunni.

mánudagur, 26. febrúar 2018

Vestri vann undankeppnina en Bingi og feðgarnir eru Reykjanesmeistarar

Reykjanesmótið í sveitakeppni var haldið í Hafnarfirði um helgina. Eftir harða keppni stóð sveit Vestra uppi sem sigurvegari í undankeppni Íslandsmótsins en Bingi og feðgarnir eru hinsvegar Reykjanesmeistarar þar sem þeir urðu efsta sveitin sem er skipuð meirihluta spilara í félögum á svæðinu.

föstudagur, 23. febrúar 2018

Briddsfélag Selfoss

Þegar þremur umferðum af fimm er lokið í aðalsveitakeppninn, hafa menn Billa tekið forystuna, þó er naumt á milli sveita og úrslitin hvergi nærri ráðin.

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Björk og Jón eru Kópavogsmeistarar í tvímenningi

Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld. Eftir æsispennandi keppni stóðu Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson uppi sem sigurvegarar með aðeins 0,9 stigum meira en þeir Jón Þorvarðarson og Þórir Sigursteinsson.

fimmtudagur, 22. febrúar 2018

Rangæingar -- Blásarasveitin

Sl. þriðjudag lauk sveitakeppni okkar Rangæinga.  Saxófónbræður luku leik með sóma og sann, þó formaðurinn skipti sér út úr byrjunarliðinu og stillti upp litlum þverflautuleikara frá Selfossi sem djúpum miðjumanni í síðasta leik.