Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 30. september 2009

Startmóti BA lokið

Þá er fyrsta móti af vetrardagskrá Bridgefélags Akureyrar lokið en þar lauk tveggja kvölda startmóti. Eftir fyrra kvöldið voru efstir þeir Pétur Guðjóns og Toni með 62,9% skor.

þriðjudagur, 29. september 2009

Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur

Stefán Jóhannsson og Sverrir Kristinsson fengu risaskor á öðru kvöldi af þremur hjá Bridgefélagi Reykjvíkur og eru nú í efsta sæti með 90 stig.    Sjá nánar hér.

þriðjudagur, 29. september 2009

A-Hansen mót Bridgefélags Hafnfj.

Guðbrandur Sigurbergsson og Friðþjófur Einarsson eru efstir eftir fyrsta kvöldið af þremur í A-Hansen tvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar. 20 pör taka þátt.

sunnudagur, 27. september 2009

Briddsfélag Selfoss og nágrennis

Næstkomandi fimmtudag hefst spilamennska hjá briddsfélagi Selfoss. Spilaður verður einskvöldstvímenningur. Spilað verður í Tryggvaskála og hefst spilamennska stundvíslega kl 19:30 Hægt er að skrá sig hér http://bokun.

fimmtudagur, 24. september 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Hafliði Baldursson og Unnar Atli Guðmundsson með 63.4%

Hafliði Baldursson og Unnar Atli Guðmundsson unnu 18 para tvímenning með góðu skori, 63.4%. Þeir fengu gjafabréf á Just Food to go að Laugarásvegi 1. Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson urðu í 2. sæti og Björn Arnarsson og Garðar Valur Jónsson nældu sér i 3. sæti.

þriðjudagur, 22. september 2009

Vetrarstarf B.A. hafið

Starf Bridgefélags Akureyrar í vetur er hafið með tveggja kvölda Starttvímenningi. Eftir harða baráttu eru Pétur og Anton með ágætis forystu en harða nagla á hælum sér.

þriðjudagur, 22. september 2009

Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur

Stefán Stefánsson og Vignir Hauksson eru efstir eftir fyrsta kvöld af þremur með 52 stig.  Jón Ingþórsson og Vilhjálmur Sigurðsson eru næstir með 36 stig.

mánudagur, 21. september 2009

Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason sigruðu í Hafnarfirði

23 pör spiluðu eins kvölds tvímenning í Hafnarfirði mánudaginn 21.september. Hlutskarpastir urðu Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason en fast á hæla þeirra komu Einar Sigurðsson og Högni Friðþjófsson sem eru loksins búnir að setja golfsettin inn í geymslu.