Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
föstudagur, 27. nóvember 2009

Bridgefélag Selfoss: Önnur umferðin í hraðsveitakeppninni

Önnur umferðin í Hraðsveitakeppninni var spiluð fimmtudaginn 26. nóvember sl. Þeir Gunnar Björn, Ólafur, Sveinn og Torfi leiða enn mótið, nú með 3 impa forskoti.

fimmtudagur, 26. nóvember 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Haraldur Ingason og Þórir Sigursteinsson unnu með 63,4%

Haraldur Ingason og Þórir Sigursteinsson fengu nýju bridgebókina hans Guðmundar Páls, Íslenskar bridgeþrautir, í verðlaun fyrir að vinna einskvölds tvímenning í Miðvikudagsklúbbnum.

miðvikudagur, 25. nóvember 2009

Annað kvöld Akureyrarmóts lokið

Síðastliðinn þriðjudag lauk öðru kvöldi af fjórum í Akureyramótinu í tvímenningi.Staða þriggja efstu manna þetta kvöldið var eftirfarandi:  60,8%   Pétur Guðjónsson - Hörður Blöndal 60,6%   Reynir Helgason - Frímann Stefánsson 59,0%   Ragnheiður Haraldssdóttir - Sigurður Erlingsson Samanlögð úrslit eftir fyrstu tvö kvöldin eru þá:  60,7%  Pétur Guðjónsson - Hörður Blöndal 57,9%  Grettir Frímannsson - Stefán Ragnarsson 55,4%  Reynir Helgason - Frímann Stefánsson 53,0%  Jón Björnsson - Sveinn Pálsson 51,5%  Ævar Ármannsson - Árni Bjarnason   Frekari upplýsingar um úrslit má nálgast hér.

miðvikudagur, 25. nóvember 2009

Cavendish tvímenningur BR

Hlynur Angantýsson og Ragnar Hermannsson leiða mótið eftir fyrsta kvöld af þremur með 619 stig Sjá nánar á heimasíðu BR

mánudagur, 23. nóvember 2009

Bridgefélag Selfoss: Úrslit úr fyrsta kvöldi hraðsveitakeppninnar

Keppni hófst í hraðsveitakeppni félagsins 19. nóvember sl. Í mótinu taka sex sveitir þátt, og verður mótið spilað á þremur kvöldum. Efstir í mótinu eftir fyrsta kvöldið eru Ólafur, Gunnar Björn, Torfi og Sveinn með 64 impa í plús.

fimmtudagur, 19. nóvember 2009

Bridgefélag Rangæinga

Annað kvöld af fimm í Butler fór fram hjá Rangæingum núna 17.11.  Mjög góð þátttaka var og spilað á átta borðum.  Í þetta sinn voru það félagarnir Bjössi og Eiríkur sem stóðu uppi sem sigurvegarar kvöldsins með þó nokkrum yfirburðum 84 stig og 2,8 imp meðaltal pr.

miðvikudagur, 18. nóvember 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Sigtryggur og Gísli með 68,5% skor!!

Sigtryggur Sigurðsson og Gísli Steingrímsson unnu 25 para mót með glæsilegu skori, 68,5% skor. Þeir fengu að launum nýútgefnu bókina, Íslenskar bridge þrautir eftir Guðmund Pál.

miðvikudagur, 18. nóvember 2009

Akureyrarmót hafið

Síðastliðinn þriðjudag hófst fjögurra kvölda Akureyramót í tvímenningi. Til keppni voru mætt 16 pör sem er fín mæting. Spiluð voru 9 umferðir, 3 spil á milli para en spilað var eftir monrad fyrirkomulagi.