Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Akureyrarmót hafið

miðvikudagur, 18. nóvember 2009
Síðastliðinn þriðjudag hófst fjögurra kvölda Akureyramót í tvímenningi. Til keppni voru mætt 16 pör sem er fín mæting. Spiluð voru 9 umferðir, 3 spil á milli para en spilað var eftir monrad fyrirkomulagi. Það er skemmst frá því að segja að meðlimir Old Boys sveitarinnar komu sér vel fyrir í efstu tvem sætunum en uppröðun fimm efstu para var eftirfarandi: 
  1. 65,3%  Grettir Frímannsson - Stefán Ragnarsson
  2. 60,6%  Pétur Guðjónsson - Hörður Blöndal
  3. 54,8%  Jón Björnsson - Sveinn Pálsson
  4. 54,2%  Ævar Ármannsson - Árni Bjarnason
  5. 52,1%  Haukur Harðarson - Grétar Örlygsson
Frekari úrslit og spilagjöf má nálgast hér.