Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 27. október 2009

Bridgefélag Hafnarfjarðar - Hraðsveitakeppni lokið

Eðvarð Hallgrímsson sigraði í tveggja kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Með honum í sveit spiluðu Leifur Aðalsteinsson, Sigurður Steingrímsson, Kristinn Kristinsson og Óskar Sigurðsson.

laugardagur, 24. október 2009

Bridgefélag Selfoss

Síðasta kvöld Suðurgarðsmótsins lauk síðastliðið fimmtudagskvöld. Það voru þeir félagar Kristján Már og Helgi Grétar sem enduðu sem öruggir sigurvegarar.

fimmtudagur, 22. október 2009

Bridgefélag Rangæinga

Upphitunartvímenningur - 20.10.09 Þriðji í upphitunartvímenning hjá Rangæingum var iðkaður nú rétt liðinn þriðjudag.  Það má segja að titilvörn meistara síðasta vetrar hafi hafist þar með látum.

fimmtudagur, 22. október 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Hulda og Halldór efst af 26 pörum!

Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 26 para tvímenning með glæsilegu skori, 67.9%. Þau fengu að verðlaunum bókaverðlaun frá Guðmundi Páli Arnarsyni.

miðvikudagur, 30. september 2009

Startmóti BA lokið

Þá er fyrsta móti af vetrardagskrá Bridgefélags Akureyrar lokið en þar lauk tveggja kvölda startmóti. Eftir fyrra kvöldið voru efstir þeir Pétur Guðjóns og Toni með 62,9% skor.

þriðjudagur, 29. september 2009

Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur

Stefán Jóhannsson og Sverrir Kristinsson fengu risaskor á öðru kvöldi af þremur hjá Bridgefélagi Reykjvíkur og eru nú í efsta sæti með 90 stig.    Sjá nánar hér.

þriðjudagur, 29. september 2009

A-Hansen mót Bridgefélags Hafnfj.

Guðbrandur Sigurbergsson og Friðþjófur Einarsson eru efstir eftir fyrsta kvöldið af þremur í A-Hansen tvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar. 20 pör taka þátt.

sunnudagur, 27. september 2009

Briddsfélag Selfoss og nágrennis

Næstkomandi fimmtudag hefst spilamennska hjá briddsfélagi Selfoss. Spilaður verður einskvöldstvímenningur. Spilað verður í Tryggvaskála og hefst spilamennska stundvíslega kl 19:30 Hægt er að skrá sig hér http://bokun.

fimmtudagur, 24. september 2009

Miðvikudagsklúbburinn: Hafliði Baldursson og Unnar Atli Guðmundsson með 63.4%

Hafliði Baldursson og Unnar Atli Guðmundsson unnu 18 para tvímenning með góðu skori, 63.4%. Þeir fengu gjafabréf á Just Food to go að Laugarásvegi 1. Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson urðu í 2. sæti og Björn Arnarsson og Garðar Valur Jónsson nældu sér i 3. sæti.

þriðjudagur, 22. september 2009

Vetrarstarf B.A. hafið

Starf Bridgefélags Akureyrar í vetur er hafið með tveggja kvölda Starttvímenningi. Eftir harða baráttu eru Pétur og Anton með ágætis forystu en harða nagla á hælum sér.

þriðjudagur, 22. september 2009

Bridgefélag Reykjavíkur - Bötlertvímenningur

Stefán Stefánsson og Vignir Hauksson eru efstir eftir fyrsta kvöld af þremur með 52 stig.  Jón Ingþórsson og Vilhjálmur Sigurðsson eru næstir með 36 stig.

mánudagur, 21. september 2009

Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason sigruðu í Hafnarfirði

23 pör spiluðu eins kvölds tvímenning í Hafnarfirði mánudaginn 21.september. Hlutskarpastir urðu Sigurjón Harðarson og Haukur Árnason en fast á hæla þeirra komu Einar Sigurðsson og Högni Friðþjófsson sem eru loksins búnir að setja golfsettin inn í geymslu.

fimmtudagur, 27. ágúst 2009

Sumarbridge: Halldór og Unnar Atli efstir af 36 pörum!

2 bronsstigahæstu spilarar sumarsins sneru bökum saman og spiluðu við hvorn annann. Þeir enduðu efstir með 63,2% skor, einu % hærri en Hermann Friðriksson og Gunnlaugur Sævarsson.

mánudagur, 24. ágúst 2009

Sumarbridge: Guðmundur og Stefán unnu með 60,9%

Guðmundur Skúlason og Stefán Stefánsson voru með góða forystu fyrir síðustu umferð og þrátt fyrir stórtap þá héldu þeir sætinu, 4,8 stigum á undan Hjálmari S.

föstudagur, 21. ágúst 2009

Jón Halldór og Unnar Atli unnu Föstudagsbridge

Spilað var á sjö borðum þegar tilraun var gerð með Föstudagsbridge þann 21 ágúst.

miðvikudagur, 19. ágúst 2009

Sumarbridge: Guðrún og Arngunnur toppuðu 38 para tvímenning!

Guðrún Jóhannesdóttir og Arngunnur Jónsdóttir voru efstar af 38 pörum í Sumarbridge. Mikil barátta var um efstu sætin en þær stóðu upp úr í lokin.

fimmtudagur, 13. ágúst 2009

Hjördís Sigurjóns og Kristján Blöndal vinna 36 para mót

Sjá nánar Sumarbridge 2009

mánudagur, 10. ágúst 2009

Alda Guðna og Hrafnhildur Skúla vinna 28 para mót

Sjá Sumarbridge 2009

miðvikudagur, 5. ágúst 2009

Garðar Garðarsson og Gunnlaugur Sævarsson unnu 31 para mót.

Sjá Sumarbridge 2009

mánudagur, 3. ágúst 2009

Unglingar vinna sumarbridge

Sigurbj�rn Haraldsson og J�hann Sigur�arson unnu 20 para tv�menning Sj� Sumarbridge 2009