Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
föstudagur, 28. maí 2010

Sumarbridge 2010: Gunnlaugur og Ísak unnu 30 para tvímenning með 69,1%

30 pör mættu til leiks miðvikudaginn 26. maí. Gunnlaugur Karlsson og Ísak Örn Sigurðsson sigruðu með hæsta skori sumarsins, 69,1%. Í öðru sæti voru Þórður Björnsson og Helgi Bogason með 61,5%.

þriðjudagur, 25. maí 2010

Gólfmótið á Strönd

Golf-Bridge mótið var haldið á Strönd 22. maí, með þátttöku 17 para og í blíðskaparveðri. Sigurvegarar í samanlögðum árangri urðu Jón Ingþórsson og Kristinn Ólafsson.

fimmtudagur, 20. maí 2010

Sumarbridge 2010: Örn Einarsson og Bragi Bjarnason efstir af 32 pörum!!

Örn Einarsson og Bragi Bjarnason unnu 32 para monrad Barómeter með 61% skor. Í 2. sæti voru Gunnar Björn Helgason og Örvar Óskarsson með rétt rúmlega 60% skor.

miðvikudagur, 19. maí 2010

Sumarbridge 2010: Staðan í rauntíma!!

Sumarbridge 2010 ætlar að bjóða öllum áhugamönnum að fylgjast með stöðunni á hverju kvöldi eftir hvern innslátt í BridgeMate. Ekki verður boðið upp á að sýna spilin fyrr en að spilamennsku lokinni, en staðan verður uppfærð eftir hvern innslátt á hverju spili í BridgeMate.

þriðjudagur, 18. maí 2010

Golf-Bridge 22.maí

Golf- Bridge mót. Golf-Bridge mótið verður haldið í annað sinn laugardaginn 22. maí á Strandarvelli (Hellu). Leikfyrirkomulag í golfinu er "Betri bolti", þeas.

mánudagur, 17. maí 2010

Sumarbridge: Gunnar Björn og Ómar efstir með 61,6%!

Gunnar Björn Helgason og Ómar Olgeirsson unnu mánudagskvöld í Sumarbridge með 61,6% skor. Þeir fá ókeypis næst þegar þeir mæta í Sumarbridge 2010.

föstudagur, 14. maí 2010

Sumarbridge-Akureyri

Bridgef�lag Akureyrar stendur fyrir sumarbridge eins og undanfarin �r. Spila�ur er tv�menningur � �ri�judagskv�ldum fr� og me� 25. ma� til og me� 14. september.

fimmtudagur, 13. maí 2010

Bridsfélag Kópavogs lauk tímabilinu 6. maí.

Fimmtudaginn 6. maí var síðasta spilakvöldið á þessum vetri hjá bridgefélagi Kópavogs. Fyrr um kvöldið var haldinn aðalfundur félagsins og þar steig formaðurinn Loftur Pétursson niður eftir 10 farsæl ár og vill félagið þakka honum fyrir mjög vel unnin störf.