Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
föstudagur, 29. október 2010

Bridgefélag Selfoss: Ólafur og Gunnar Björn taka forystu

Þeir Ólafur Steinason og Gunnar Björn hafa forystu í Málarabutler Briddsfélags Selfoss þegar tveimur kvöldum af þremur er lokið. En skammt á hæla þeirra koma Kristján Már og Helgi Grétar og ekki þar langt á eftir Björn og Guðmundur.

föstudagur, 29. október 2010

Bridgefélag Rangæinga (22)

Nafnarnir Magnús sigldu sigri sínum nær örugglega í höfn núna síðastliðið þriðjudagskvöld og voru fáir sem gerðu sig líklega til þess að standa í vegi fyrir þeim.

fimmtudagur, 28. október 2010

Þorsteinn Berg og Óskar Sigurðsson unnu Butlerinn í Kópavogi

Þriggja kvölda butlertvímenningi Bridgefélags Kópavogs er lokið. Óskar Sigurðsson og Þorstein Berg stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða keppni við þá feðga Þórð Jörundsson og Jörund Þórðarson sem gáfu verulega eftir síðasta kvöldið.

fimmtudagur, 21. október 2010

Feðgarnir fræknu efstir eftir tvö kvöld í Kópavogi

Feðgarnir Þórður Jörundsson og Jörundur Þórðarson eru efstir eftir tvö kvöld af þremur í Butler-keppni Bridgefélags Kópavogs. Besta skori kvöldsins náðu hinsvegar forsetinn fyrrverandi Þorsteinn Berg og makker hans, Óskar Sigurðsson.

fimmtudagur, 21. október 2010

Þriggja kvölda Butlertvímenningi lokið með sigri Karls G. og Gunnlaugar

Þriggja kvölda Butlertvímenningi lauk með sigri Karls G. Karlssonar og Gunnlaugs Sævarssonar. Svala Pálsdóttir lék eitt kvöld með Gunnlaugi og eru þau þrjú vel að þessu komin.

fimmtudagur, 21. október 2010

Málarabutler Briddsfélags Selfoss

Málararbutler Briddsfélags Selfoss hófst síðastliðinn fimmtudag með þátttöku 11 para. Þeir Guðmundur og Björn leiða eftir fyrsta kvöldið. Á hæla þeirra koma svo Þröstur og Ríkharður.

fimmtudagur, 21. október 2010

Bridgefélags Rangæinga

Hér fæst staðfest að þriðja spilakvöld félagsins leið hjá núna síðastliðinn þriðjudag.  Ekki bárust nein stórtíðindi af þessu kvöldi önnur en þau að meistarar fyrri ára mættu loks og er talið ljóst að áskorun sú sem sett var fram fyrir nokkru hafi eitthvað spilað þar inní.

miðvikudagur, 20. október 2010

Miðvikudagsklúbburinn: Hulda og Halldór unnu 26 para tvímenning

Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 26 para tvímenning miðvikudaginn 20. október. Baráttan um efsta sætið var jöfn og hörð og enduðu Hulda og Halldór 1 stigi fyrir ofan Esther Jakobsdóttur og Hjördísi Sigurjónsdóttur.