Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 30. nóvember 2010

Hallgrímur og Hjálmar leiða Cavendish tvímenning BR eftir 2 kvöld

og eru með um 500 stiga forskot á næsta par.  En auðvelt er að tapa þessari forystu í einni setu.

laugardagur, 27. nóvember 2010

Reykjavíkurmeistarar í tvímenning 2010

Reykjavíkurmeistarar í tvímenningi 2010 eru Ísak Örn Sigurðsson og Helgi Sigurðsson Lokastaðan Ísak Örn Sigurðsson - Helgi Sigurðsson  = 248 stig Gísli Þórarinsson - Þórður Sigurðsson = 241 stig Hróflur Hjaltason - Oddur Hjaltason = 240 stig Sjá öll úrslit hér

föstudagur, 26. nóvember 2010

Þröstur heldur forystu í Sigfúsartvímenningi

Þegar þremur kvöldum af fjörum er lokið í Sigfúsartvímenningi briddsfélags Selfoss eru þeir Þröstur og Rikharður/Guðjón efstir. En á eftir þeiim kemur nokkuð þéttur pakki.

föstudagur, 26. nóvember 2010

Reykjavíkurmótið í tvímenningi á laugardaginn!

Reykjavíkurmótið í tvímenning stendur nú yfir.

föstudagur, 26. nóvember 2010

Líf og fjör í Kópavogi

Nú fer að líða að lokum Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs. Þegar þrjár umferðir eru eftir hafa sveitir Eðvarðs, Vina og Baldurs  skorið sig nokkuð frá hinum en fjórtán stigum munar á þriðja og fjórða sætinu.

fimmtudagur, 25. nóvember 2010

Hraðsveitakeppni á Suðurnesum

Miðvikudaginn 24.nóv byrjaði tveggja kvölda hraðsveitakeppni á Suðurnesjum. Spilað var á 7 borðum og var fyrirkomulagið þannig að N-S sat fast og E-W færði sig.

fimmtudagur, 25. nóvember 2010

Bridgefélag Rangæinga (25)

Síðastliðinn þriðjudag urðu nokkur stórtíðindi.   Af 15 pörum náðu einungis 4 pör plússkori sem þýðir að lægsta mínusskorið (og þar með 5. sætið) dugar í 7 bronsstig!!  Eftir leit í sögubókum hefur jafnoki þessa ekki fundist.

þriðjudagur, 23. nóvember 2010

Cavendish Tvímenningur BR 2010

Sveinn Stefánsson og Bergur Reynisson eru með ágætis forystu að loknu fyrista kvöldi af þremur í Cavendish tvímenningi BR 2010.