Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 21. október 2010

Þriggja kvölda Butlertvímenningi lokið með sigri Karls G. og Gunnlaugar

Þriggja kvölda Butlertvímenningi lauk með sigri Karls G. Karlssonar og Gunnlaugs Sævarssonar. Svala Pálsdóttir lék eitt kvöld með Gunnlaugi og eru þau þrjú vel að þessu komin.

fimmtudagur, 21. október 2010

Málarabutler Briddsfélags Selfoss

Málararbutler Briddsfélags Selfoss hófst síðastliðinn fimmtudag með þátttöku 11 para. Þeir Guðmundur og Björn leiða eftir fyrsta kvöldið. Á hæla þeirra koma svo Þröstur og Ríkharður.

fimmtudagur, 21. október 2010

Bridgefélags Rangæinga

Hér fæst staðfest að þriðja spilakvöld félagsins leið hjá núna síðastliðinn þriðjudag.  Ekki bárust nein stórtíðindi af þessu kvöldi önnur en þau að meistarar fyrri ára mættu loks og er talið ljóst að áskorun sú sem sett var fram fyrir nokkru hafi eitthvað spilað þar inní.

miðvikudagur, 20. október 2010

Miðvikudagsklúbburinn: Hulda og Halldór unnu 26 para tvímenning

Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu 26 para tvímenning miðvikudaginn 20. október. Baráttan um efsta sætið var jöfn og hörð og enduðu Hulda og Halldór 1 stigi fyrir ofan Esther Jakobsdóttur og Hjördísi Sigurjónsdóttur.

fimmtudagur, 30. september 2010

Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen stóðu uppi sem sigurvegarar.

Í eins kvölds tvímenningi hjá bridgefélagi Suðurnesja/Muninn sigruðu þeir Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen með 67.4% skor. Næstir á eftir þeim voru þeir Jóhannes Sigurðsson og Óli Þór Kjartansson með 61.1% skor.

miðvikudagur, 29. september 2010

Miðvikudagsklúbburinn: Björn og Unnar Atli efstir af 20 pörum!

Björn Friðriksson og Unnar Atli Guðmundsson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum miðvikudaginn 29. september. Þeir unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Þrír frakkar hjá Úlfari.

miðvikudagur, 29. september 2010

Bridgefélag Rangæinga (20)

Næstkomandi þriðjudag (5. október) hefjast að nýju samverustundir meðlima Briddsfélags Rangæinga.  Staðurinn er Heimaland og stundin 19:30.  Dagskrá vetrar hefur litið dagsins ljós og má sjá hér.

þriðjudagur, 28. september 2010

Startmót Sjóvá hjá B.A.

Þá er fyrsta móti vetrardagskrár Bridgefélags Akureyrar lokið sem var tveggja kvölda tvímenningur, Startmót Sjóvá. Þátt tóku 14 pör og tvísýnt var hvaða pör næðu verðlaunasæti því gengi margra para var ólíkt milli kvölda.

þriðjudagur, 28. september 2010

Haustbötler BR 2010

Oddur Hjaltason og Hrólfur Hjaltason leiða mótið með 80 stig.  Á hæla þeirra koma Stefán Jóhannsson og Kjartan Ásmundsson með 62 stig.

mánudagur, 27. september 2010

Bf. Hafnarfjarðar: Rúnar og Skúli óstöðvandi á 1. kvöldi A.Hansen tvímenningsins

Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason eru langefstir eftir 1. kvöld af 3 í A.Hansen tvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar. Þeir eru með +111 sem jafngildir 68% skor.

sunnudagur, 26. september 2010

Briddsfélag Selfoss

Vetrarstarf Briddsfélags Selfoss hóft síðastliðið föstudagskvöld, með aðalfundi félagasins. Að loknum fundarstörfum var spilaður stuttur tvímenningur.

föstudagur, 24. september 2010

Bridgefélag Kópavogs

Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson fóru á kostum fyrsta kvöldið af þremur í howell-tvímenningi hjá Bridgefélagi Kópavogs þegar þeir fengu 71,4% skor og verður þrautin þyngri fyrir næstu pör að ná þeim.

þriðjudagur, 31. ágúst 2010

Bridgefélag Reykjavkur - Haustdagskrá

Haustdagskrá BR 2010 Bridgefélag Reykjavíkur riðjudagskvöld Dagskrá haustið 2010 Bridgefélag Reykjavíkur mun spila á þriðjudögum í vetur í Síðumúla 37og hefst spilamennska kl.

þriðjudagur, 31. ágúst 2010

Bridgefélag Hafnarfjarðar - Haustdagskrá

Bridgefélag Hafnarfjarðar Haust 2010 Einskvölda tvímenningur 13/9  20/9 A-Hansen tvímenningur 27/9  4/10  11/10 Hraðsveitakeppni 18/10  25/10 Einskvölda tvímenningur 1/11  8/11 Mitchell tvímenningur 15/11  22/11  29/11 Aðalsveitakeppni 6/12  13/12  Jólatvímenningur 20/12 Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar 29/12 Spilað verður að Flatahrauni 3 og hefst spilamennska kl.

fimmtudagur, 19. ágúst 2010

Sumarbridge: Brynjar og Vilhjálmur efstir með 64,1% skor!

Brynjar Jónsson og Vilhjálmur Sigurðsson JR voru efstir af 35 pörum með 64,1%. Næstir voru Sverrir G. Kristinsson og Páll Valdimarsson með 61,4% og í þriðja sæti voru Hrund Einarsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir með 60,8%.

mánudagur, 16. ágúst 2010

Sumarbridge: Ómar og Hjálmar efstir af 26 pörum með 64,7%

Hjálmar Pálsson og Ómar Jónsson unnu 26 para tvímenning með 64,7%. Næstar voru Guðrún Jóhannesdóttir og Arngunnur Jónsdóttir með 62,2% og þriðju voru Jón Ingþórsson og Hermann Friðriksson með 61,9%.

þriðjudagur, 10. ágúst 2010

Örn Einarsson og Jens Karlsson efstir í Sumarbridge

Örn Einarson og Jens Karlsson urðu efstir í Sumarbridge miðvikudaginn níunda ágúst með 63,1% skor. Sjá öll úrslit á heimasíðu Sumarbridge.

miðvikudagur, 4. ágúst 2010

Alda og Kristján efst í Sumarbridge

Alda Guðnadóttir og Kristján Björn Snorrason sigruðu í Sumarbridge miðvikudaginn 04 ágúst með 59,5% skori. Sjáöll úrslit á heimasíðu Sumarbridge.

mánudagur, 2. ágúst 2010

Hrund og Dröfn efstar á frídag verslunarmanna

Hrund Einarsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir sigruðu nokkuð örugglega í Sumarbridge á frídegi verslunarmanna með 60,6% skor. 1. Hrund Einarsdóttir - Dröfn Guðmundsdóttir       60,6% 2.

þriðjudagur, 27. júlí 2010

Sumarbridge: Guðrún og Haraldur efst af 34 pörum!

Guðrún Jóhannesdóttir og Haraldur Ingason voru efst af 34 pörum í Sumarbridge, mánudaginn 26. júlí.