Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Aðaltvímenningur BR

mánudagur, 28. janúar 2013
Góðan daginn ágætu bridgespilarar.  Þá er löngu og ströngu upphitunarmóti fyrir aðaltvímenning BR lokið.  Vonandi skemmtu sér allir vel.  Það er stutt stórra högga á milli og annað kvöld hefst aðaltvímenningur BR.  Í ár munum við snúa aftur til fyrra horfs og spila einfaldan barómeter, allir við alla.    Mjög gott væri ef að spilarar gætu skráð sig fyrirfram á br@bridge.iseða hringja í Rúnar s: 820-4595, Denna 864-2112 eða Guðjón 846-1511.  Það er nauðsynlegt til að keppnisstjóri geti skipulagt mótið, byrjað á réttum tíma, hversu mörg spil á að spila á milli para o.s.frv.  Hlökkum til að sjá sem flesta.  Kveðja, Stjórnin