Fréttir - 2013 - 09
Bridgefélag Selfoss: Úrslit úr aðalfundartvímenningnum
Föstudaginn 27. september sl. var haldinn aðalfundur Bridgefélags Selfoss. Er skemst frá því að segja að stjórnin var öll endurkjörin, og skipa því áfram þeir Garðar Garðarsson formaður, Kristján Már Gunnnarsson gjaldkeri, Guðmundur Þór Gunnarsson ritari, Björn Snorrason varaformaður og þeir Brynjólfur Gestsson og Ríkharður Sverrisson meðstjórnendur.
Þórir og Björn með nauma forystu í Kópavogi
Björn Halldórsson og Þórir Sigursteinsson eru með nauma forystu eftir tvö kvöld af þremur í Hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Í öðru sæti eru feðgarnir Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson og Sigruður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson eru þriðju efir að hafa náð 63,1% skori í kvöld.
Hausttvímenningur BK heldur áfram; Opið fyrir pör sem vilja koma inn
Þriggja kvölda Hausttímenningur Bridgefélags Kópavogs heldur áfram í kvöld, fimmtudagsköld. Þar sem tvö bestu kvöldin gilda til verðlauna þá er opið fyrir ný pör að koma inn og spila síðustu tvö kvöldin.
BH: Gunnlaugur og Högni efstir með 64,4%
Gunnlaugur Óskarsson og Högni Friðþjófsson unnu seinni einskvölds upphitunartvímening félagsins. Þeir enduðu með 64,4% skor sem var tæp 5% ofar en þær Harpa Fold og Svala sem urðu í 2. sæti.
Bf eldri borgara í Hafnarfirði: Úrslit 24.9 og myndir á facebook
Hægt er að sjá úrslit og öll spil frá spilakvöldum Bridgefélags eldri borgára í Hafnarfirði á heimasíðu þeirra: Heimasíða BFEH Þar má einnig sjá link á facebook með myndum sem Aðalsteinn Jörgensen tók af spilamennsku félagsins.
Spilakvöld á Suðurnesjum færast á Fimmtudaga
Tekin hefur verið ákvörðun um að færa spilakvöldin hjá BS Muninn yfir á fimmtudagskvöld í stað miðvikudaga. Vinsamlegast látið þetta berast til allra félagsmanna.
Dömukvöld BR: Alda og Stefanía unnu fyrsta kvöldið
Alda Guðnadóttir og Stefanía Sigurbjörnsdóttir unnu fyrsta dömukvöld BR með rúmlega 63% skor. 28 pör mættu til leiks og tókst kvöldið einstaklega vel.
Björn og Þórir efstir í Kópavogi
Björn Halldórsson og Þórir Sigursteinsson eru efstir eftir fyrsta kvöld af þremur í Haust-Monrad Bridgefélags Kópavogs. Þeir fengu 60,5% skor en tvö bestu kvöldin gilda til verðlauna.