Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 31. október 2013

Hjördís með 20-0 sigur í fyrstu umferð.

Fyrstu tveimur umferðunum í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er lokið og náði sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur 20-0 sigri ein sveita í fyrstu umferð og er í efsta sæti.

miðvikudagur, 30. október 2013

Rangæingar -- Sundmaðurinn á flugsundi

Sl. þriðjudagskvöld mættu 10 pör til leiks á Heimaland og spiluðu 28 spil í 7 umferðum, Monrad.    Sundmaðurinn ógurlegi Magnús Halldórsson hefur farið mikinn undanfarið og er kominn á toppinn í Meistarakeppni félagsins eftir að þeir félagar, Magnús og Sigurjón Pálsson, deildu 1. sætinu í gær með bankastjórunum, Torfa og Sigurði, á 57,6% skori.

þriðjudagur, 29. október 2013

Jón og Sigurbjörn eru með forystu í bötler tvímenningi BR

En forystan er naum.  Hún getur horfið í einu spili.  Staðan er... 1. Jón Baldursson - Sigurbjörn Haraldsson  = 59 2. Friðjón Þórhallsson - Hrólfur Hjaltason = 50 3. Kjartan Ásmundsson - Stefán Jóhannsson  = 46 .

þriðjudagur, 29. október 2013

BH: Sveit Gunnlaugs Sævarssonar vann 2ja kvölda Hraðsveitakeppni

Sveit Gunnlaugs Sævarssonar vann 2ja kvölda Hraðsveitakeppni BH með +148 impa.  Þeir sýndu mikinn stöðugleika og skoruðu +74 bæði kvöldin. Með Gunnlaugi spiluðu Kristján Már Gunnarsson, Sigtryggur Sigurðsson og Friðjón Þórhallsson.

sunnudagur, 27. október 2013

Hnífjafnt á Suðurnesjum

Kvöld tvö af þremur í hausttvímenning á Suðurnesjum var æsispennandi allt fram í lokaumferð. Kvöldið endaði með að tvö pör voru jöfn en Garðar Garðarsson og Gunnar Guðbjörnsson enduðu fyrir ofan þá Sigurjón og Odd, en bæði pör fengu 65,7% skor.

föstudagur, 25. október 2013

Briddsfélag Selfoss

Fyrsta kvöldið af þremur í butlertvímenning hófst fimmtudaginn 24. okt með þátttöku 14 para. Spilað var á nýjum stað og virtist nýja staðsetningin fara vel í þá Ólaf Steinason og Þröst Árnason því þeir eru með nokkuð þægilega forystu í mótinu.

fimmtudagur, 24. október 2013

Eiður og Júlíus unnu SuperSub-impamótið

Kristján Snorrason og Ásmundur Örnólfsson náðu besta skori kvöldsins á lokakvöldi SuperSub-impmótsins sem var spilað nú í kvöld. Eiður Mar Júlíusson og Eðvarð Hallgrímsson, sem leysti Júlís Snorrason af, urðu í þriðja sæt sem dugði þeim til öruggs sigurs í heildarkeppninni.

fimmtudagur, 24. október 2013

Hraðsveitakeppni Gámaþjónustu Norðurlands

Þá er hafið næsta mót hjá B.A. með þáttöku 7 sveita.