Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 31. janúar 2013

Bernódus og Ingvaldur með 70% eftir fyrsta kvöld

Aðaltvímenningur Bridgefélags Kópavogs hófst í kvöld þegar spilað var fyrsta kvöldið af fjórum. Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson náðu flgúgandi starti því þeir eru með 70% skor eftir fimm umferðir af 23 í mótinu öllu.

fimmtudagur, 31. janúar 2013

Rangæingar -- Jafnaðarmenn að ná fótfestu í Rangárþingi?

Þriðjudaginn 29. janúar var spiluð 3ja umferð í sveitakeppni félagsins.  Til leiks eru mættar 8 sveitir og eftir 3 umferðir eru 3 sveitir efstar og jafnar með 55 stig.

fimmtudagur, 31. janúar 2013

AÐALTVÍMENNINGUR BK; Enn opið fyrir skráningu

Aðaltvímenningur Bridgefélags Kóopavogs hefst kl. 19:00 í kvöld. Þeir sem ekki hafa skráð sig fyrirfram eru beðnir um að mæta tímanlega í kvöld og skrá sig þannig að vel gangi að byrja mótið.

fimmtudagur, 31. janúar 2013

Miðvikudagsklúbburinn: Guðrún Jörgensen og Björn Arnarson með 64,3%!

Guðrún Jörgensen og Björn Arnarson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með glæsilegu skori, 64,3%.  Næst voru Soffía Daníelsdóttir og Óli Björn Gunnarsson með 57,9% og í 3ja sæti voru Ásgeir Yngvi Jónsson og Siguðrur G.

miðvikudagur, 30. janúar 2013

AÐALTVÍMENNINGUR BK AÐ HEFJAST

Aðaltvímenningur Bridgefélags Kópavogs hefst næsta fimmtudag, 31 janúar. Spilaður verður fjögurra kvölda barómeter, allir við alla. Spiluð verða á bilinu 25-30 spil hvert kvöld en það fer eftir fjölda para og fjölda umferða.

þriðjudagur, 29. janúar 2013

Sveitarokk á Suðurnesjum

Næsta miðvikudagskvöld munum við spila ca 5 kvölda sveitarokk (Aðalsveitakeppni) Barometer. Stefnum að því að vera með 10 borð svo ég hvet alla til að mæta.

mánudagur, 28. janúar 2013

Að sjálfsögðu var efsta íslanska sveitin úr Hafnarfirði

Til hamingju Erla og sveitafélagar

mánudagur, 28. janúar 2013

Aðaltvímenningur BR

Góðan daginn ágætu bridgespilarar.  Þá er löngu og ströngu upphitunarmóti fyrir aðaltvímenning BR lokið.  Vonandi skemmtu sér allir vel.  Það er stutt stórra högga á milli og annað kvöld hefst aðaltvímenningur BR.