Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 30. apríl 2013

Impamót B.A., lokastaðan

Eftir 3ja kvöld urðu öruggir sigurvegarar þeir Pétur Guðjónsson og Stefán Ragnarsson en með þeim unnu sveitakeppnina Víðir Jónsson, Jón Sverrisson og Stefán Sveinbjörnsson.

þriðjudagur, 30. apríl 2013

Jón og Þorlákur með sjö toppa forystu í Sushi Samba tvímenningi BR

Að þrem kvöldum af fjórum lokið, eru Jón Baldursson og Þorlákur með yfirburðaforystu.

þriðjudagur, 30. apríl 2013

Síðasta spilakvöld vetrarins í Kópavogi

Síðasta spilakvöld vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs verður fimmtudaginn 02 maí kl. 19:00. Þá verður spilaður Howell eða Mitchell tvímenningur sem fer eftir borðafjölda.

mánudagur, 29. apríl 2013

Árshátíð bridgekvenna 4.maí 2013

Sjá auglýsingu hér

mánudagur, 29. apríl 2013

ATH. Ekki er spilað í BH í kvöld Sjáumst hress í haust

laugardagur, 27. apríl 2013

Davíðsmót í Dölum vestur

Hið árlega Davíðsmót fór fram í Tjarnarlundi í Saurbæ í dag. Sautján pör mættu til leiks og spiluðu sjö umferðir eftir monrad, samtals 28 spil. Mótið hófst um hádegisbil með dýrindis kjötsúpu og brauði en síðan hófst spilamennskan sem var síðan stöðvuð um hálf fjögur með kaffi og kökuhlaðborði og síðan spilað til rúmlega fimm.

föstudagur, 26. apríl 2013

Rangæingar -- Lokakvöld....og lagið var tekið.....

Síðasta vetrardag öxluðu Rangæingar skinn sín og skunduðu á Flúðir, hvar verkefnið var að ljúka vetrarstarfinu.  Þar snæddum við dýrindis kvöldverð á Icelandair hótelinu.

fimmtudagur, 25. apríl 2013

Kristján og Ásmundur rétt mörðu sigur

Þriggja kvölda Moradtvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld með afar naumum sigri þeirra Kristjáns Snorrasonar og Ásmundar Örnólfssonar. Samanlögð prósentuskor kvöldanna þriggja gilti til verðlauna og höfðu Kridtján og Ásmundur um tíma 5 prósentur i forskot á næsta par en gáfu eftir í lokin og enduðu með aðeins 0,1% meira en þeir Ragnar Björnsson og Sigurður Sigurjónsson.