Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 30. september 2014

Startmóti B.A. lokið og Greifamót næst!

Þá er lokið tveggja kvölda Startmótinu en mótið jafnaðist verulega seinna kvöldið. Efstir urðu Pétur Guðjónsson og Anton Haraldsson með 56,4%.

mánudagur, 29. september 2014

Ekki spilað hjá bridgefélagi nýliða í kvöld, 29.sept

Ekki spilað í kvöld, 29.

mánudagur, 29. september 2014

BH: 3ja kvölda Gamla vínhús Butler að byrja

Mánudaginn 29. september byrjar 3ja kvölda Butler með verðlaun frá Gamla vínhúsinu.  Allir spilarar eru velkomnir.

laugardagur, 27. september 2014

Briddsfélag Selfoss

Vetararstarf briddsfélags Selfoss hófst föstudaginn 26. september með aðalfundi. Formannsskipti urðu hjá félaginu, Brynjólfur Gestsson tók við af Garðari Garðarssyni.

föstudagur, 26. september 2014

Dömukvöld BR: Esther og Anna Þóra með 67,9%

Anna Þóra Jónsdóttir og Esther Jakobsdóttir unnu fyrsta Dömukvöld BR veturinn 2014-2015.

fimmtudagur, 25. september 2014

Gísli og Heimir efstir eftir tvö kvöld í Haust-Monrad

Gísli og Heimir Tryggvasynir eru efstir eftir tvö kvöld af þremur í Haust-Monrad Bridgefélags Kópavogs.

þriðjudagur, 23. september 2014

Bridgefélag nýliða - úrslit 22. september

Inga Dóra Sigurðardóttir og Ingveldur Bragadóttir og Guðrún Indriðadóttir og Dagný Jónsdóttir enduðu efstar og jafnar á spilakvöldinu 22. sept. Öll úrslit og spil hér Spennandi stigakeppni í gangi þar sem veitt verða vegleg verðlaun á síðasta spilakvöldi ársins.

mánudagur, 22. september 2014

Briddsfélag Selfoss

Vetrarstarf Bridgefélags Selfoss hefst föstudaginn 26. September næstkomandi með aðalfundi félagsins.Fundurinn hefst kl 20:00 og verður í Selinu á íþróttavellinum.