Fréttir - 2014 - 12
Bragi og Helgi burstuðu Minningarmót Sigtryggs Sigurðssonar
Bragi Hauksson og Helgi Jónsson burstuðu minninarmót Sigtryggs Sigurðssonar og Yfirburðirnir voru miklir. Meir en 100 stig.
Bronsstig hjá BK komin á netið.
Bronsstigin fram að jólum hjá Bridgefélagi Kópavogs eru komin á heimasíðuna. Páll Valdimarsson trónir þar á toppnum en velgegni í nýlokinni Aðalsveitakeppni gaf slatta af uppbótarstigum.
Rangæingar Jólamót -- Á ýmsu gekk!
Sunnudaginn 28. desember á spilastjóri Rangæinga afmæli. Þann dag var haldið mót, að vísu ekki honum til heiðurs, heldur var það hið árlega jólamót félagsins.
Íslandsbankamótið á Akureyri
Íslandsbankamótið fór fram þann 28. des og var verulega spennandi. Baráttan um flugeldana var enda hörð allt fram á lokaspil. Sigurvegarar urðu Gylfi Pálsson og Helgi Steinsson aðeins 2 stigum ofan við Pétur Guðjónsson og Sigurbjörn Haraldsson.
Raunstaða Jólamóts Hafnarfjarðar
Hér er hægt að fylgjast með Jólamóti BH spil fyrir spil: www.bridge.is/meistarastig/bh/ 2014-12-27.
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar.
HIÐ ÁRLEGA JÓLAMÓT BRIDGEFÉLAGS HAFNARFJARÐAR verður haldið laugardaginn 27. desember að Flatahrauni 3 og hefst mótið klukkan 13:00. Hægt er að skrá sig á mótið hér.
Rangæingar -- Jólamót í óviðjafnanlegu umhverfi
Sunnudaginn 28. desember höldum við Rangæingar okkar árlega jólamót. Spilað verður í golfskálanum á Strönd í fallegasta umhverfi sem spilað er í á Íslandi og þó víðar væri leitað.
GLEÐILEG JÓL + VORDAGSKRÁ BK
Bridgefélag Kópavogs óskar öllum bridgespilurum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ár og þökkum öllum þeim er spiluðu hjá okkur á árinu fyrir skemmtilegar stundir.
Afmælismót Jóns Baldurssonar: Raunstaða spil fyrir spil
http://www.bridge.is/meistarastig/midvikudagsklubburinn/20142015/2014-12-19.