Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
föstudagur, 31. október 2014

Briddsfélag Selfoss

Eftir tvö kvöld af þremur í málarabutler félagsins er Anton Hartmannsson lang efstur, að þessu sinni var hann með Ríkharði Sverrissyni. Í öðru sæti eru þeir Kristján Már og Karl Hermannsson.

föstudagur, 31. október 2014

Sveit Björns Halldórssonar tók forystuna í Kópavogi

Sveit Björns Halldórssonar hefur 6 stiga forystu eftir tvær fyrstu umferðirnar í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs.

fimmtudagur, 30. október 2014

Bridgefélag nýliða-úrslit 30.okt

Spilað á 5 borðum í kvöld 30. október. Valgerður og Unnur sigruðu en fast á hæla þeirra voru Bergþóra og Kristjana og þriðja sætið tóku Rán og Kristín.

miðvikudagur, 29. október 2014

Rangæingar -- Landsliðsmenn?

Sl. þriðjudagskvöld komu Rangæingar að vanda saman að Heimalandi.   Ekki til að spila framsóknarvist, nema ef vera skyldi spilastjórinn, sem virðist liðtækari í vist en því göfuga spili BRIDGE, ef marka má spilamennsku hans þetta kvöldið.

þriðjudagur, 28. október 2014

Afmælisfagnaður B.A. og Hraðsveitakeppnin

Bridgefélag Akureyrar er jafn gamalt lýðveldinu, stofnað 1944, og varð því 70 ára í sumar! Við munum halda upp á það með spilamennsku og mat laugardaginn 1.nóv.

föstudagur, 24. október 2014

Haraldur og Þórir unnu FRESCO-impakeppnina

FRESCO-impakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk í gærkvöldi með yfirburðasigri Haraldar Ingasonar og Þóris Sigursteinssonar. sigurður Jón Björgvinsson og Baldur Bjartmarsson náðu besta skori kvöldsins með 61 impa í plús sem dugði þeim þó aðeins í fjórða sætið.

föstudagur, 24. október 2014

Briddsfélag Selfoss

Málarabutler Briddsfélags Selfoss hófst fimmtudaginn 23. október. Aðeins 8 pör mættu til leiks og er það mikið áhyggju efni hve fáir sjá sér fært að mæta á spilakvöld.

þriðjudagur, 21. október 2014

Spilakvöld nýliða 20. okt

Kristín Marinósdóttir og Gyða Bjarkadóttir urðu hlutskarpastar í kvöld og Kristín Orradóttir og Sóley Jakobsdóttir stutt á eftir. Hér má sjá öll úrslit og spil  Staðan í stigakeppninni er þannig að Kristín Orradóttir og Sóley Jakobsdóttir eru efstar með 54 stig og Ingveldur Bragadóttir og Inga Dóra Sigurðardóttir næstar með 40 stig.