Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
sunnudagur, 30. nóvember 2014

Briddsfélag Selfoss

Þá er lokið þremur kvöldum af fjórum í aðaltvímenningi félagsins. Efstir þetta kvöld urðu þeir Guðmundur Sæmundsson og Sigurður Vilhjálmsson, í hæla þeirra nörtuðu svo bræðurnir Anton og pétur.

sunnudagur, 30. nóvember 2014

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafarfjarðar

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar hefst í kvöld. Skráning á spilastað.

laugardagur, 29. nóvember 2014

Jólamót Við Höfnina á Dalvík

Þann 28.nóvember var hið stórskemmtilega jólamót  Við Höfnina   á Dalvík sem Gústi stendur fyrir. Mætingin var mjög góð eða 18 pör. Margir spilarar fóru út með fangið fullt af skinkum og konfekti en sigurvegarar urðu Stefán Sveinbjörnsson og Jón Tryggvi.

föstudagur, 28. nóvember 2014

Æsispennandi keppni um annað sætið hjá BK

Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs hélt áfram í gærkvöldi og er nú lokið 10 umferðum af 13. Sveit Matthíasar Þorvaldssonar er með 30 stiga forystu þegar aðeins eru 60 stig eftir í pottinum en keppnin um silfur- og bronsverðlaunin er æsispennandi.

fimmtudagur, 27. nóvember 2014

Rangæingar -- Teknir í....eehhhh.... fangið?

Sl. þriðjudagskvöld komu framsóknarmenn og aðrir spilarar saman að Heimalandi til að leika 3ju umferð í 5 kvölda BUTLER-tvímenningi félagsins.   Spiluð voru 28 spil með Monrad fyrirkomulagi og mættu 13 pör til leiks.

fimmtudagur, 27. nóvember 2014

Miðvikudagsklúbburinn: Unnar og Ingibjörg efst af 33 pörum!

Unnar Atli Guðmundsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir unnu 33 para tvímenning með 61,2% skor. Í 2. sæti voru Harpa Fold Ingólfsdóttir og Vignir Hauksson með 60.6% og í 3ja sæti voru Jón Viðar Jónmundsson og Þorvaldur Pálmason með 60%.

þriðjudagur, 25. nóvember 2014

Hraðsveitakeppni BH: Sveit Sigujóns Björnssonar sigurvegari!

Sveit Sigurjóns Björnssonar vann 3ja kvölda Hraðsveitakeppni BH með +174 impa. Í 2. sæti varð sveit Drafnar Guðmundsdóttur með +119 impa og í 3ja sæti varð sveit Vestra með +107 impa.

laugardagur, 22. nóvember 2014

Briddsfélag Selfoss

Lokið er tveimur kvöldum af 4 í aðaltvímenningi félagsin. Efstir þetta kvöld urður þeir Höskuldur og Eyþór.