Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 31. desember 2015

Jólamót BR - Ragnar Magnússon og Steinar Jónsson sigruðu

62 pör spiluðu í jólamóti BR. Ragnar Magnússon og Steinar Jónsson tóku um miðbik mótsins og létu hana aldrei af hendi og unnu með glæsilegu skori eða 67,8%.

sunnudagur, 27. desember 2015

Hermann Friðriks og Daníel Már unnu Jólamót BH

Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar fór fram í dag að Hraunseli 3. Eftir að Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson höfðu leitt mótið frá upphafi þá tókst Hermanni Friðrikssyni og Daníel Má Sigurðsyni að hrifsa af þeim efsta sætið í lokaumferðinni.

sunnudagur, 27. desember 2015

Rangæingar -- Hinir síðustu verða fyrstir

Kvöldið fyrir Þorláksmessu lukum við Rangæingar við 5 kvölda Butler haustins, með því að leika síðustu umferðina og sameinuðum hana árlegum jólabarómeter okkar, með verðlaunum sem sérstaklega var ætlað að passa vel með Þorláksmessu skötunni.

sunnudagur, 20. desember 2015

Jólamót Bridgefélags Hafnarjarðar

Jólamót félagsins fer fram þann 27.12.2015 og hefst klukkan 13. Spilað verður í Hraunseli. Sjá auglýsingu hér.

fimmtudagur, 17. desember 2015

Júlíus og Eiður sigruðu Jólatvímenning BK

Síðara kvöldið í Jólatvímenning Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson sigruðu örugglega með níu prósenta mun þegar prósentuskor beggja kvölda var lagt saman.

fimmtudagur, 17. desember 2015

Briddsfélag Selfoss

Brynjólfur Gestsson er einmenningsmeistari þetta árið, að vísu fékk hann smá aðstoð hjá reikninmeistaranum seinna kvöldið. Þetta var síðasta mót félagsins á þessu ári, hefst nýtt spilaár með HSK móti í tvímenningi sem spilaður verður fimmtudaginn 7.janúar.

miðvikudagur, 16. desember 2015

Rangæingar -- Jólasveinar einn og átta

Enn áttum við Rangæingar erindi á Heimaland til að setjast að spilum.  Í þetta sinn til að leika 4. umferð af 5 í Butlertvímenningi félagsins.  Þátttökumetið þetta haustið var slegið, þar sem 16 pör mættu til leiks.

miðvikudagur, 16. desember 2015

Þorvaldur og Jóhann jólasveinar BR

Þovaldur Pálmason og Jóhann Stefánsson sigruðu í jólasveinatvímenningi BR eftir harða baráttu við Guðjón Sigurjónsson og Berg Reynisson. Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason urðu í 3ja sæti.

sunnudagur, 29. nóvember 2015

Suðurnesjafréttir

Spilaður er næstu fjögur kvöld butler tvímenningur.

laugardagur, 28. nóvember 2015

Rangæingar -- 2007

Um árabil höfum við Rangæingar att kappi við Hrunamenn einu sinni á ári.   Framan af skiptust liðin á að fagna sigri en frá árinu 2008  hafa Hrunamenn mátt lúta í gras og bikarinn átt sinn fasta samastað á Heimalandi, heimavelli okkar Rangæinga.

föstudagur, 27. nóvember 2015

Páll Þórsson og Kjartan Ásmundsson unnu Minningarmót Halldórs Einarssonar

Minningarmót Halldórs Einarssonar var spilað föstudagskvöldið 27 nóv. Kjartan Ásmundsson og Páll Þórsson skutust upp í efsta sætið í lokaumferðinni í viðureign við Aðalstein og Birki.

fimmtudagur, 26. nóvember 2015

Briddsfélag Selfoss

2 kvöldum af þremur er lokið í aðaltvímenning félagsins. Garðar og Pétur urður hlutskarpastir í kvöld.

fimmtudagur, 26. nóvember 2015

Pétur Gísla og félagar búnir að vinna í Kópavogi

Í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs hefur sveit Péturs Gíslasonar rétt rúmlega 20 stiga forystu þega aðeins ein umferð er eftir og er því búin að vinna keppnina.

fimmtudagur, 26. nóvember 2015

Minningarmót Halldórs Einarssonar Raunstaða

Föstudaginn 27. nóvember ætlar Bridgefélag Hafnarfjarðar að heiðra minningu Halldórs Einarssonar með léttum og skemmtilegum tvímenning og mögulega sveitakeppni að loknum tvímenning ef næg þátttaka næst.

föstudagur, 20. nóvember 2015

Briddsfélag Selfoss

Búið er að spila 1 kvöld af þremur í aðaltvímenningi félagsins. Reiknimeistarinn lenti í smá hremmingum en telur að rétt niðurstaða sé kominn. Það er hægt að koma fyrir fleiri pörum í salnum og hvetjum við fleiri til að mæta.

fimmtudagur, 19. nóvember 2015

Pétur Gísla enn efstur í Kópavogi

Sveit Péturs Gíslasonar jók enn frekar við forskotið í Aðalsveitakeppni Bridgefélag Kópavogs. Öll úrslit.

föstudagur, 30. október 2015

Bridsfélag Selfoss

Síðast liðinn fimmtudag hófst þriggjakvölda tvímenningur.

fimmtudagur, 29. október 2015

Aðalsveitakeppni BK. Bergsteinn og félagar efstir

Sveit Bergsteins Einarssonar er efst eftir tvær umferðir í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs. Aðalsveitakeppni BK.

fimmtudagur, 29. október 2015

Minningarmót um Halldór Einarsson

Minningarmót Bridgefélags Hafnerfjarðar um Halldór Einarsson. sem halda átti samkværmt dagskrá félagsins þann 30.10.2015 verður haldið föstudaginn 27.11.2015.  Sjá hér.

miðvikudagur, 28. október 2015

Rangæingar -- Flokkapólitík

Sl. þriðjudagskvöld settust Rangæingar að spilum að vanda.   Með í för að Heimalandi voru tveir bjórkassar, hvers innihald var notað til verðlaunaveitinga það kvöldið.