Föstudaginn 27. nóvember ætlar Bridgefélag Hafnarfjarðar að heiðra minningu Halldórs Einarssonar með léttum og skemmtilegum tvímenning og mögulega sveitakeppni að loknum tvímenning ef næg þátttaka næst. Mótið hefst kl 18:00 og spilað verður að Flatahrauni 3. Þátttökugjald er 2000 kr á mann og mun 60% af þátttökugjöldum renna í verðlaunafé fyrir tvímenninginn, ásamt nokkrum aukaverðlaunum. Boðið verður uppá pizzu í hléi. Til sölu verða góðar veigar á vægu verði.
Minningarmót Halldórs Einarssonar Raunstaða
fimmtudagur, 26. nóvember 2015