Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 31. desember 2015

Jólamót BR - Ragnar Magnússon og Steinar Jónsson sigruðu

62 pör spiluðu í jólamóti BR. Ragnar Magnússon og Steinar Jónsson tóku um miðbik mótsins og létu hana aldrei af hendi og unnu með glæsilegu skori eða 67,8%.

sunnudagur, 27. desember 2015

Hermann Friðriks og Daníel Már unnu Jólamót BH

Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar fór fram í dag að Hraunseli 3. Eftir að Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson höfðu leitt mótið frá upphafi þá tókst Hermanni Friðrikssyni og Daníel Má Sigurðsyni að hrifsa af þeim efsta sætið í lokaumferðinni.

sunnudagur, 27. desember 2015

Rangæingar -- Hinir síðustu verða fyrstir

Kvöldið fyrir Þorláksmessu lukum við Rangæingar við 5 kvölda Butler haustins, með því að leika síðustu umferðina og sameinuðum hana árlegum jólabarómeter okkar, með verðlaunum sem sérstaklega var ætlað að passa vel með Þorláksmessu skötunni.

sunnudagur, 20. desember 2015

Jólamót Bridgefélags Hafnarjarðar

Jólamót félagsins fer fram þann 27.12.2015 og hefst klukkan 13. Spilað verður í Hraunseli. Sjá auglýsingu hér.

fimmtudagur, 17. desember 2015

Júlíus og Eiður sigruðu Jólatvímenning BK

Síðara kvöldið í Jólatvímenning Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson sigruðu örugglega með níu prósenta mun þegar prósentuskor beggja kvölda var lagt saman.

fimmtudagur, 17. desember 2015

Briddsfélag Selfoss

Brynjólfur Gestsson er einmenningsmeistari þetta árið, að vísu fékk hann smá aðstoð hjá reikninmeistaranum seinna kvöldið. Þetta var síðasta mót félagsins á þessu ári, hefst nýtt spilaár með HSK móti í tvímenningi sem spilaður verður fimmtudaginn 7.janúar.

miðvikudagur, 16. desember 2015

Rangæingar -- Jólasveinar einn og átta

Enn áttum við Rangæingar erindi á Heimaland til að setjast að spilum.  Í þetta sinn til að leika 4. umferð af 5 í Butlertvímenningi félagsins.  Þátttökumetið þetta haustið var slegið, þar sem 16 pör mættu til leiks.

miðvikudagur, 16. desember 2015

Þorvaldur og Jóhann jólasveinar BR

Þovaldur Pálmason og Jóhann Stefánsson sigruðu í jólasveinatvímenningi BR eftir harða baráttu við Guðjón Sigurjónsson og Berg Reynisson. Rúnar Einarsson og Skúli Skúlason urðu í 3ja sæti.