Fréttir - 2015 - 04
Gulli og Ísak tóku forystuna í Vortvímenningnum
Tveggja kvölda Vortvímenningur hófst hjá Bridgefélagi Kópavogs í kvöld. Ísak Örn Sigurðsson og Gunnlaugur Karlsson fengu 62% skor og hafa góða forystu á næstu pör.
Tveggja kvölda Vortvímenningur að hefjast í Kópavogi
Síðasta keppni þessa vetrar hjá Bridgefélagi Kópavogs er tveggja kvölda Vortvimenningur þar sem spiluð verða tvö monrad-kvöld og ekki nauðsynlegt að mæta bæði kvöldin.
Árni og Oddur unnu Davíðsmótið í Dölum vestur
Davíðsmótið var haldið í dag í Tjarnarlundi í Saurbæ til heiðurs Davíð Stefánssyni frá Saurhóli þar í sveit, en hann lést nú í vetur. Fimmtán pör mættu og spiluðu sér til gamans og þáðu frábærar veitingar í kaffihléinu.
Rangæingar -- "Steypa ættum strax í brons"
Að kvöldi síðasta vetrardags streymdu spilarar úr öllum landshornum á Selfoss til að spila þar í einhverri lokakeppni og, að því er virtist, ekki síður til að ræða um hver eigi að greiða kostnaðinn við mótshaldið.
Árni már og Leifur/Guðmundur sigruðu í Kópavogi
Impamóti Bakarameistarans lauk í kvöld með sigri Árna Más Björnssonar og Leifs Kristjánssonar með aðstoð frá Guðmundi Grétarssyni síðasta kvöldið. Öll úrslit má sjá hér.
Einskvölda tvímenningur í Hafnafirðinum.
Einkvölda tvímenningur í kvöld í Hafnarfirðinum. Hefst klukkan 19:00 að venju. Stjórnin.
Leifur og Árni Már með góða forystu í Kópavogi
Annað kvöldið af þremur í Impamóti Bakarameistarans var spilað í kvöld og tóku Árni Már Björnsson og Leifur Kristjánsson afgerandi forystu með 62 impa í plús.
Rangæingar -- "Flaug þar Örninn fugla hæst"
Nú er vorið á næsta leiti og ekki síst undir Eyjafjöllum þar sem heimavöllur okkar Rangæinga er staðsettur að Heimalandi. Okkur Rangæingum finnst afar gott að spila á okkar heimavelli, enda húsaleiga félaginu afar hagstæð, þökk sé stuðningi sveitarfélagsins Rangárþings eystra, og heima er jú alltaf best.