Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 29. september 2015

Briddsfélag Selfoss

Fyrsta spila kvöld eftir sumarfrí verður fimmtudaginn 1.október. Byrjað verður á einskvölds upphitunartvímenningi.

mánudagur, 28. september 2015

Vanir - óvanir í Hafnarfirði

15 pör spiluðu í kvöld þar sem vanir spiluðu við óvana. Ásgeir Ásbjörnsson og Edda Jónasdóttir báru sigur úr býtum.

föstudagur, 25. september 2015

Erla og Ólöf unnu fyrsta Dömukvöld BR

Erla Sigurjónsdóttir og Ólöf Þorsteinsdóttir unnu fyrsta Dömukvöld BR með 61,3% skor.  Í 2. sæti urðu Soffía Daníelsdóttir og Þóranna Pálsdóttir og 3. sæti féll í hlut Ólafar Thorarensen og Ingibjörgu Halldórsdóttur.

fimmtudagur, 24. september 2015

Ingvaldur og Bernódus efstir eftir tvö kvöld af þremur í Kópavogi.

Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson eru efstir eftir tvö kvöld af þremur í hausttvímenningi Bridgefélags Kópavogs með 116,6% samanlagt ú tveimur kvöldum.

fimmtudagur, 24. september 2015

Vanir - óvanir hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar

Mánudaginn 28. september verður spilaður hefðbundinn tvímenningur hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar, en óvanir spilarar eru boðnir sérstaklega velkomnir.

mánudagur, 21. september 2015

Bridgefélag Selfoss

70. aðalfundur Bridsfélags Selfoss verður haldinn í Selinu við íþróttavöllinn, föstudagskvöldið 25. september kl. 20:00. Dagskrá Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Spilamennska á léttu nótunum að fundarstörfum loknum.

fimmtudagur, 17. september 2015

Bernódus og Ingvaldur efstir á fyrsta kvöldi í Kópavogi

Vetrarstarf Bridgefélags Kópavogs hófst í kvöld, fimmtudaginn 17 september með þriggja kvölda Monrad-tvímenningi þar sem tvö bestu kvöldin gilda til verðlauna.

miðvikudagur, 16. september 2015

Jón og Sigurbjörn eru með forystu í Sushi Samba tvímenningi BR

Jón og Sigurbjörn efstir eftir 1. umf.