Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
mánudagur, 30. mars 2015

Páskamót Bridgefélags Hafnarfjarðar

Hið árlega Páskamót Bridgefélags Hafnarfjarðar verður haldið á Föstudaginn-Langa og hefst klukkan 17:00. Spilað verður á hefðbundnum stað í sal Eldriborgara að Flatahrauni.

mánudagur, 30. mars 2015

Briddsfélag Selfoss

Þeir kumpánar Karl og Össur urðu hlutskarpastir í þriggjakvölda tvímenning sem var að ljúka. Nú er farið að síga á seinni hlutan á tímabilinu hjá félaginu, næst verður spilaður eins kvölds tvímenningur fimmtudaginn 16. apríl.

sunnudagur, 29. mars 2015

Halldór og Magnús unnu Páskatvímenning Breiðfirðinga

Páskatvímenningur Bridgedeildar Breiðfirðingafélagsins var spilaður á Pálmasunnudagskvöld og urðu úrslitin eins og sjá má hér.

laugardagur, 28. mars 2015

HSK mótið í sveitakeppni

HSK-mótið í sveitakeppni var spilað á Flúðum laugardaginn 21. mars með þátttöku 12 sveita. Sveit TM Selfossi sigraði eftir harða baráttu við sveit Halldórs Svanbergssonar og í þriðja sæti var sveit SFG.

föstudagur, 27. mars 2015

Jörundur og félagar sigruðu í Kópavogi

Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk í gærkvöldi með nokkuð öruggum sigri sveitar Jörundar Þórðarsonar með líklega elsta sigurvegara landsins innanborðs því faðir formannsins, Þórður Jörundsson er kominn nokkuð á tíræðisaldurinn.

miðvikudagur, 25. mars 2015

Halldór og Magnús efstir í Miðvikudagsklúbbnum

Halldór Þorvaldsson og Mgnús Sverrisson urðu efstir með 62% skor í Miðvikudagsklúbbnum í kvöld. Sjá hér.

miðvikudagur, 25. mars 2015

Rangæingar -- Björninn!!

Sl. þriðjudagskvöld komu Rangæingar enn saman að Heimalandi og léku 3. umferð í Samverkstvímenningnum.   Til leiks mættu 14 pör og léku að vanda 28 spil með Monrad-fyrirkomulagi.

föstudagur, 20. mars 2015

BR Konukvöld 20.03.2015

Ester og Alda efstar á konukvöldi BR Lokastaðan: Ester og Alda = 64,8% skor Hulda og Hrafnhildur = 61,7% skor Soffía og Inga Lára = 55,6% skor